< 2 Pétursbréf 3 >

1 Kæru vinir, þetta er annað bréfið sem ég skrifa ykkur, og í þeim báðum hef ég reynt að minna ykkur – ef ég má – á þann sannleika, sem þið þekkið nú þegar: 2 Sannleikann sem þið lærðuð af hinum heilögu spámönnum og okkur postulunum, sem fluttum ykkur orð Drottins okkar og frelsara. 3 Í fyrsta lagi vil ég minna ykkur á að á síðustu tímum munu koma fram lastmælendur, sem reyna að valda öllu því tjóni sem þeir geta, og hæðast að sannleikanum. 4 Röksemdir þeirra verða á þessa leið: „Jesús lofaði að koma aftur, ekki satt? En hvað er orðið af honum? Ha? Hann mun aldrei koma! Eins langt og menn muna stendur allt við það sama, allt frá því að heimurinn varð til.“ 5 Viljandi gleyma þeir því að Guð eyddi jörðinni í gífurlegu flóði, löngu eftir að hann hafði skapað heiminn með orði sínu – eftir að hann hafði notað vatnið til að mynda jörðina og umlykja hana. 6 7 Guð hefur sagt að himinn og jörð skuli bíða eldsins á degi dómsins og þá muni allir óguðlegir menn farast. 8 En gleymið því nú ekki, kæru vinir, að í augum Drottins er einn dagur jafn langur og þúsund ár og þúsund ár sem einn dagur. 9 Hann er því alls ekki seinn að efna loforðið um endurkomu sína, jafnvel þótt sumum virðist svo. Það veldur bið hans að hann vill ekki að neinir glatist og því gefur hann syndurunum enn frest til að iðrast. 10 Dagur Drottins mun vissulega koma. Hann mun koma óvænt, líkt og þjófur, og þá munu himnarnir líða undir lok með miklum gný og frumefni alheimsins brenna upp í eldi. Þá mun jörðin eyðast og allt sem á henni er. 11 Skyldum við ekki þurfa að lifa heilögu og guðrækilegu lífi, fyrst allt umhverfis okkur leysist upp á þennan hátt? 12 Horfið fram til þess dags með eftirvæntingu og flýtið fyrir honum, deginum er Guð lætur himnana brenna, frumefnin bráðna og leysast upp í logum. 13 Samkvæmt loforði Guðs væntum við nýs himins og nýrrar jarðar, þar sem allt er í samræmi við vilja Guðs. 14 Kæru vinir, meðan við bíðum þessara hluta og komu hans, kappkostið þá að vera án syndar. Haldið frið við alla menn, svo að Drottni líki við ykkur er hann kemur aftur. 15 Munið hvers vegna hann bíður. Hann gerir það til þess að við getum flutt hjálpræðisboðskap hans út til allra manna. Páll, hinn elskaði og skynsami bróðir okkar, hefur rætt um þetta í mörgum bréfa sinna. 16 Sumt af því sem hann segir er torskilið, og til eru menn, sem af ásettu ráði hegða sér heimskulega og vilja snúa út úr því sem hann segir. Þeir hafa mistúlkað bréf hans svo hrapallega að þau fá allt aðra merkingu en til var ætlast og þannig fara þeir með margt annað í Biblíunni. Afleiðingin er sú að þeir leiða tortímingu yfir sjálfa sig. 17 Kæru vinir, ég vara ykkur við í tíma, svo að þið fylgist vel með öllu og látið ekki leiðast afvega af mistökum þessara vondu manna, því að þá gætuð þið sjálf orðið eins og þeir. 18 Vaxið heldur andlega og lærið að þekkja betur Drottin okkar og frelsara, Jesú Krist. Honum sé heiður og dýrð, bæði nú og um alla framtíð. Amen. Pétur (aiōn g165)

< 2 Pétursbréf 3 >

The World is Destroyed by Water
The World is Destroyed by Water