< 1 Jóhannesarbréf 1 >

1 Kristur hefur verið til frá upphafi. Ég hef séð hann með eigin augum og heyrt hann tala. Ég hef líka snert hann með höndum mínum og ég veit að hann hefur flutt okkur boðskap Guðs um lífið. 2 Hann er lífið frá Guði og hann hefur birst okkur. Það er sannleikur að við höfum séð hann. Ég er að tala um Krist, hann sem er eilífa lífið. Í upphafi var hann hjá föðurnum, en síðan fengum við að sjá hann. (aiōnios g166) 3 Og það, sem við sáum og heyrðum, segjum við ykkur, svo að þið getið átt samfélag við okkur og tekið þátt í þeirri gleði sem við eigum með föðurnum og syni hans, Jesú Kristi. 4 Ef þið gerið eins og ég segi ykkur í þessu bréfi, munuð þið eignast fullkomna gleði eins og við. 5 Þetta er boðskapurinn sem Guð sendi okkur með til ykkar: Guð er ljós og myrkur er alls ekki í honum. 6 Ef við segjum að við séum vinir hans, en höldum samt áfram að lifa í andlegu myrkri og synd, þá ljúgum við. 7 En ef við lifum í ljósi Guðs á sama hátt og Kristur, þá getum við glaðst og átt dásamlegt samfélag hvert við annað og blóð Jesú, sonar hans, hreinsar okkur af allri synd. 8 Ef við segjum að við séum ekki syndarar, þá blekkjum við sjálf okkur og viljum ekki horfast í augu við sannleikann. 9 En ef við játum syndir okkar fyrir Guði, getum við treyst því að hann fyrirgefi þær og hreinsi okkur af öllu ranglæti. Í þessu gerir Guð rétt, því að Kristur dó til þess að taka burt syndir okkar. 10 Ef við höldum því fram að við höfum ekki syndgað, þá ljúgum við og köllum Guð lygara, því að það er hann sem segir að við höfum syndgað.

< 1 Jóhannesarbréf 1 >