< Sálmarnir 125 >

1 Þeir sem treysta Drottni eru eins og Síonfjall, þeir haggast ekki. 2 Fjöllin umhverfis Jerúsalem eru henni til verndar, eins er Drottinn, hann umlykur og verndar sitt fólk. 3 Ekki skulu óguðlegir drottna yfir trúuðum, né réttlátir þvingaðir til illverka. 4 Ó, Drottinn, gerðu vel við þá sem góðir eru, þá sem leitast við að gera vilja þinn, 5 en útrýmdu illgjörðamönnum. Láttu frið og velgengni ríkja í Ísrael.

< Sálmarnir 125 >