< Sálmarnir 124 >

1 Hefði það ekki verið Drottinn sem með okkur var þetta skulu allir í Ísrael játa – hefði það ekki verið Drottinn, 2 þá hefðu óvinirnir gleypt okkur lifandi, 3 útrýmt okkur í heiftarreiði sinni. 4 Við hefðum skolast burt á augabragði, 5 horfið í strauminn. 6 Lofaður sé Drottinn, hann bjargaði okkur úr klóm þeirra. 7 Við sluppum eins og fugl úr snöru veiðimanns. Snaran gaf sig og við flugum burt! 8 Hjálp okkar kemur frá Drottni sem skapaði himin og jörð.

< Sálmarnir 124 >