< Bharumi 3 >

1 Okumala ni mabhona-ki ganu alinago Omuyaudi? Ka na mabhona go lutendo ni chinuki?
Hvaða gagn er þá af því að vera Gyðingur? Hafa þeir einhver sérstök forréttindi hjá Guði? Hefur hin gyðinglega siðvenja, umskurnin, eitthvert gildi?
2 Nijakisi muno mu bhuli njila. Amwi Nejo jone, Abhayaudi bhayanilwe okuswelulilwa okusoka mu Nyamuanga.
Já, það hefur marga kosti að vera Gyðingur. Fyrst og fremst þann að Guð trúði þeim fyrir lögum sínum (svo að þeir gerðu sér grein fyrir vilja hans og hlýddu honum).
3 Mbe nawe jilibha atiki ka abhandi bha Bhayaudi bhanu bhatalibha na likilisha? Angu bhunyatekilisha bhwebhwe obhukola obhwiikanyibhwa bhwa Nyamuanga kubha kutyo-ela?
Það er að vísu rétt að sumir þeirra reyndust ótrúir, en tekur Guð loforð sín aftur vegna þess eins að þeir brugðust?
4 Uli nakatyali, Kukila ao siga Nyamuanga abhonekane kubha we chimali, nolwo kutyo bhuli munu ni mulimi. Lwa kutyo jandikilwe, “Ati utule okubhonekana kubha mulengelesi mu misango jao, na utule okuiga anu owingila mundamu.”
Nei, að sjálfsögðu ekki! Þótt sérhver maður reyndist lygari, væri Guð það ekki. Munið þið hvað stendur í Davíðssálmunum um þetta: „Guðs orð mun alltaf reynast satt og rétt, jafnvel þótt einhver dragi það í efa.“
5 Mbe nawe bhukabha obhunyamuke bhweswe nibhwelesha obhulengelesi bhwa Nyamuanga, mbe chaikeki? Nyamuanga atali mulangi-langi anu kasosha lisungu lyae, angu alio kutyo? Enaika okulubhana ne misango je chinyamunu.
„Já, en, “segja sumir, „sviksemi okkar við Guð verður til góðs – syndir okkar þjóna góðum tilgangi. Þegar fólk sér hversu vondir við erum, veitir það því athygli hve Guð er góður. Og fyrst synd okkar verður honum til hjálpar, er þá nokkuð réttlæti í því að hann refsi okkur?“
6 Uli nakatyali! Mbe woli ni kutiki Nyamuanga kajokulamula Echalo?
Þannig tala sumir en slíkar röksemdir ná ekki nokkurri átt. Hvers konar Guð væri hann ef honum væri sama um syndina – ef hann léti sig einu gilda hvort menn óhlýðnuðust boðum hans og vilja – og hvernig gæti hann þá sakfellt nokkurn mann?
7 Mbe nawe echimali cha Nyamuanga chikabha Nichilabha ku lulimi lwani elisoka likusho lyafu ingulu yae, kulwaki nichali nindamulwa lwo webhibhibhi?
Nei, hann gæti ekki dæmt mig og sakfellt sem syndara ef óheiðarleiki minn og lygi yrðu honum til dýrðar, við það að vera borin saman við heiðarleika hans.
8 Kulwaki chisige okwaika, lwa kutyo chabheyelesibhwe na lwa kutyo abhandi abhakomelesha ati chaike, “Chikole obhunyamuke, koleleki agekisi gaje”? Indamu ingulu yebhwe niye chimali.
Sé þetta hins vegar skoðun þín, þá verður niðurstaðan þessi: Því verri sem við erum, því ánægðari verður Guð! Þeir sem þannig tala verðskulda glötun. Hvernig geta menn haldið því fram að þetta sé sá boðskapur sem ég flyt?
9 Mbe woli niki? Echililila eswe abhene? Uli chimwi. Kulwo kubha eswe chelabhile okubhalamula Abhandi na Abhayunani bhona amwi, ati bhali mu chibhibhi.
En erum við Gyðingar betri en annað fólk? Nei, alls ekki. Við höfum þegar sýnt fram á að allir menn eru syndarar, Gyðingar jafnt sem heiðingjar.
10 Jinu ni lwa kutyo jandikilwe: “Atalio mulengelesi, nolwo umwi.
Um þetta segir Gamla testamentið: „Enginn maður er réttlátur, ekki einn einasti.
11 Atalio omunu unu kasombokelwa. Atalio omunu unu kamuyenja Nyamuanga.
Enginn maður þekkir Guð í raun og veru né þráir að kynnast honum.
12 bhona bhaindukile. Bhenene ku bhona bhatachali na nsonga. Atalio unu kakola agekisi, uli nolwo umwi.
Allir hafa farið sína eigin leið – og villst. Enginn hefur í einu og öllu lagt stund á hið góða, ekki einn einasti.
13 Amamilo gebhwe ni nfwa jinu jili abhwelu. Jindimi jebhwe ejibheya. Obhusungu bhwa jinjoka bhuli munda ye minwa jebhwe.
Tal mannanna er viðbjóðslegt og rotið, já, rétt eins og nálykt frá opinni gröf. Lygin loðir við tungu þeirra og allt sem þeir segja hefur í sér brodd og banvænt eitur höggormsins.
14 Mu Kanwa kebhwe bhijuye bhifumilisho no bhululu.
Munnur þeirra er fullur formælinga og beiskju.
15 Amagaulu gebhwe ni mangu okwita amanyiga.
Þeir eru fljótir til að drepa og hata hvern þann sem er þeim ósammála.
16 Obhunyamuke na jinyako jili mu njila jebhwe.
Hvar sem þeir fara, skilja þeir eftir sig eymd og ógæfu,
17 Abhanu bhanu bhataimenya injila yo mulembe.
og þeir hafa engan skilning á því hvað það er að njóta öryggis og blessunar Guðs.
18 Obhubha bhwo kumubhaya Nyamuanga bhutalimo imbele ya meso gebhwe.”
Þeim er alveg sama um Guð og hvað honum finnst um þá.“
19 Woli chamenya ati chona chona chinu echilagilo echaika, echaika na bhaliya bhanu bhali emwalo ye chilagilo. Chinu ni ati koleleki bhuli minwa jijibhisibhwe, kwibhyo ni ati Echalo chona chimubhaye Nyamuanga.
Dómur Guðs er þungur yfir Gyðingum, því þeim ber að hlýða lögum Guðs, en ekki leggja stund á hið illa. Þeir hafa því enga afsökun, enginn þeirra. Þegar allt kemur til alls verður heimurinn að þagna, því að hann er sekur frammi fyrir hinum almáttuga Guði.
20 Jinu ni kwa insonga ati gutalio mubhili gunu gulibhalilwa obhulengelesi kwe bhikolwa bhye bhilagilo imbele ya meso gae. Kulwo kubha okulabha ku bhilagilo obhuja obhumenyi bhwe chibhibhi.
Skiljið þið nú, að enginn getur orðið réttlátur í augum Guðs með því að hlýðnast lögunum? Eftir því sem við kynnumst lögum Guðs betur, því betur sjáum við að við getum alls ekki hlýtt þeim. Tilgangur laganna er sá einn að sýna okkur fram á að við erum syndarar.
21 Mbe nawe woli chikabhulao echilagilo, obhulengelesi bhwa Nyamuanga obhumenyekana. Jabhulisibhwe kwe bhilagilo na abhalagi,
En nú hefur Guð bent okkur á aðra leið til sín. Hún felst ekki í því að menn skuli vera góðir og reyna að hlýða lögunum, heldur er um nýja leið að ræða (reyndar er hún nú ekki ný því að Gamla testamentið sagði frá henni fyrir langa löngu).
22 echo ni chimali cha Nyamuanga okulabha mu likilisha mu Yesu Kristo ku bhaliya bhona bhanu abhekilisha. Kulwo kubha bhutalio bhutasikene.
Hún er þessi: Guð vill taka okkur í sátt við sig og sýkna okkur, ef við treystum því að Jesús Kristur fyrirgefi og taki burt syndir okkar. Öll getum við frelsast á þennan eina og sama hátt: Að koma til Krists, og þá skiptir engu hver við erum eða hvernig við höfum lifað.
23 Kulwo kubha bhona bhakolele echibhibhi, no kukeelelwa likusho lya Nyamuanga.
Allir hafa syndgað – óhlýðnast Guði og skortir dýrð hans,
24 Bhabhaliywe obhulengelesi kutyo-ela kulwe chigongo chae kwa injila yo bhuchungusi bhunu bhuli mu Kristo Yesu.
en Guð lýsir því yfir að við séum saklaus af allri andstöðu við hann, ef við treystum Jesú Kristi, sem í kærleika sínum vill fyrirgefa okkur syndir okkar.
25 Kulwo kubha Nyamuanga amusosishe Kristo Yesu koleleki abhe mugwatanyisha mu njila ye likilisha mu manyiga gae. Amusosishe Kristo uti bhubhambasi bhwo bhulengelesi bhwae, kwa insonga yo kubhisingilila ebhibhibhi bhinu bhyatulile
Guð sendi Jesú Krist til að taka á sig hegninguna fyrir syndir okkar og að binda enda á reiði Guðs í okkar garð. Við frelsumst frá þessari reiði Guðs fyrir blóð Krists, það er að segja, vegna dauða hans á krossinum – og með því að trúa á hann og treysta hjálp hans. Í öllu þessu var Guð fullkomlega réttlátur, jafnvel þótt hann hafi ekki refsað þeim sem syndguðu fyrr á tímum, því að hann leit fram til þess tíma er Kristur kæmi og tæki burt syndir þeirra.
26 mu kwingumilisha kwae. Ganu gona gabhonekene koleleki okwelesha obhulengelesi bhwae mu mwanya gunu ogwa woli. Jinu jabhee koleleki atule okukumisha mwenene obhulengelesi, no kwelesha ati kamubhalila obhulengelesi omunu wona wona kulwa insonga ye likilisha mu Yesu.
Guð getur á sama hátt tekið á móti syndurunum nú á okkar dögum, því að Jesús dó einnig fyrir þeirra syndir. En er nokkurt réttlæti í því að Guð láti afbrotamenn ganga lausa og lýsi því yfir að þeir séu saklausir? Já, það getur hann ef þeir trúa því að Jesús hafi fyrirgefið þeim syndir þeirra.
27 Woli okwikuya kulyaki? kubhelelekelwe. kwo lufukaki? Olufuka lwe bhikolwa? Uli, mbe nawe kwo olufuka lwe likilisha.
Getum við þá hrósað okkur af góðverkum okkar og sagt að þeirra vegna eigum við skilið að fá hjálp Guðs? Nei, alls ekki. Hvers vegna ekki? Vegna þess að við fáum ekki fyrirgefninguna sem laun fyrir góðverk okkar, heldur fyrir trú á það sem Kristur gerði.
28 Kwibhyo echimalisha ati omunu kabhalilwa obhulengelesi kwe likilisha atali kulwe ebhikolwa bhye bhilagilo.
Þannig frelsumst við fyrir trúna á Krist en ekki fyrir það góða sem við gerum.
29 Amwi Nyamuanga ni Nyamuanga wa Bhayaudi la? Angu mwenene atali Nyamuanga wa bhanu bha Maanga one? Yee, owa Maanga one.
Frelsar Guð einungis Gyðinga á þennan hátt? Nei, þetta á einnig við um heiðingjana,
30 Alabha ni chimali Nyamuanga ni umwi, alibhabhalila obhulengelesi bhanu bhali bho lutendo mu likilisha, na bhanu bhatatendelwe mu njila ye likilisha.
því að Guð fer ekki í manngreinarálit. Ef við trúum þá sýknar Guð okkur, hvort sem við erum Gyðingar eða heiðingjar.
31 Angu eswe echiindula echilagilo kwe likilisha? Uli nakatyali! Obhutasikane nago, eswe echichikomelesha echilagilo.
Og segjum nú að við séum frelsuð fyrir að trúa, þýðir það þá ekki að við séum þar með laus undan því að þurfa að hlýða lögum Guðs? Nei, þvert á móti, því að sannleikurinn er sá að eina leiðin til að hlýða Guði er að trúa á Jesú Krist.

< Bharumi 3 >