< Opinberun Jóhannesar 3 >

1 Þetta skaltu skrifa leiðtoga safnaðarins í Sardes: Þetta segir sá sem hefur hinn sjöfalda anda Guðs og stjörnurnar sjö. Ég veit að fólk segir að þú sért lifandi og starfandi söfnuður, en þú ert dauður! 2 Vaknaðu! Hleyptu lífi í það litla sem eftir er – því að jafnvel það er að deyja. Verk þín eru lítils virði í augum Guðs. 3 Komdu til mín og snúðu þér aftur að því sem þú heyrðir og trúðir í upphafi og haltu fast við það. Ef þú gerir það ekki, mun ég koma til þín áður en þú veist af – óvænt – eins og þjófurinn og refsa þér. 4 Þarna í Sardes eru samt fáeinir sem ekki hafa óhreinkað sig á heiminum, og þeir munu ganga við hlið mér í hvítum klæðum, því að það eiga þeir sannarlega skilið. 5 Sá er sigrar, mun fá hvít klæði og nafnið hans mun ég ekki fjarlægja úr lífsbókinni. Ég mun viðurkenna hann frammi fyrir föður mínum og englum hans. 6 Þið sem heyrið, hlustið á það sem andi Guðs segir söfnuðunum. 7 Eftirfarandi bréf skaltu senda leiðtoga safnaðarins í Fíladelfíu: Þennan boðskap færð þú frá honum sem er heilagur og sannur. Ég hef lykil Davíðs og get opnað, svo að enginn fái læst og læst get ég, svo enginn opni. 8 Ég þekki þig – að þú hefur lítinn mátt, en hefur þó reynt að hlýðnast og ekki afneitað nafni mínu. Þess vegna hef ég opnað fyrir þér dyr sem enginn getur lokað. 9 Taktu nú eftir: Ég mun láta þá, sem vinna fyrir. Satan – þeir segjast reyndar tilheyra mér, en það er lygi því það gera þeir ekki – falla að fótum þér og viðurkenna að þú ert sá sem ég elska. 10 Þið hafið hlýtt mér, þrátt fyrir ofsóknir, og því mun ég hlífa ykkur við þeirri miklu þrengingu sem koma mun yfir heiminn – en þá munu mennirnir verða reyndir. 11 Taktu eftir! Ég kem skjótt! Haltu fast því sem þú hefur, svo að enginn taki kórónu þína. 12 Þann sem sigrar mun ég gera að máttarstólpa í musteri Guðs míns. Þar mun hann standa að eilífu og ekki haggast og á hann mun ég rita nafn Guðs míns. Hann mun tilheyra borg Guðs, hinni nýju Jerúsalem, sem kemur niður af himni frá Guði, og á hann mun verða skráð mitt nýja nafn. 13 Þið sem heyrið, hlustið á það sem andi Guðs segir söfnuðunum. 14 Þetta skaltu skrifa leiðtoga safnaðarins í Laódíkeu: Þetta segir sá sem stöðugur stendur, votturinn trúi og sanni, upphafið að sköpun Guðs: 15 Ég þekki þig – þú ert hvorki heitur né kaldur. Heldur vildi ég að þú værir annað hvort, 16 en fyrst þú ert aðeins volgur, þá mun ég skyrpa þér út úr munni mínum! 17 Þú segir: „Ég er ríkur. Ég á allt sem ég þarf, mig skortir ekkert.“Þú veist ekki að þú hefur liðið andlegt skipbrot og að þú ert fátækur vesalingur, bæði blindur og nakinn. 18 En ég ráðlegg þér að kaupa hreint gull af mér, gull sem er hreinsað í eldi. Það er eina leiðin fyrir þig til að eignast sönn auðæfi. Ég ráðlegg þér einnig að kaupa hjá mér hvít klæði, hrein og flekklaus, svo að þú verðir þér ekki til skammar með nekt þinni. Þú ættir líka að fá hjá mér smyrsl til að lækna í þér augun, svo að þú fáir aftur sjónina. 19 Ég aga þá sem ég elska og refsa þeim – einnig þér. Vertu því skynsamur og gjörðu iðrun. 20 Taktu eftir! Ég stend fyrir utan og ber að dyrum. Ef einhver heyrir til mín og opnar, mun ég fara inn til hans og setjast til borðs með honum og hann með mér. 21 Þann sem sigrar, mun ég láta sitja mér við hlið í hásæti mínu, á sama hátt og ég sigraði og settist við hlið föður míns í hásæti hans. 22 Þeir sem heyra, hlusti á það sem andi Guðs segir söfnuðunum.

< Opinberun Jóhannesar 3 >