< Sálmarnir 98 >

1 Syngið nýjan söng fyrir Drottin því að hann hefur unnið dásamlegt verk! Hann er sigursæll í mætti sínum og heilagleika. 2 Hann hefur tilkynnt sigur sinn – birt þjóðunum réttlæti sitt. 3 Hann hefur miskunnað lýð sínum, haldið loforð sín til Ísrael. Allur heimurinn sá er Guð bjargaði þjóð sinni. 4 Þess vegna hefja löndin fagnaðarsöng, syngja og lofa hann af öllu hjarta. 5 Syngið Drottni við undirleik hörpu. 6 Blásið í lúðra og básúnur gjalli! Hljómsveitin spili lofgjörðarlag. Hyllið Drottin, konunginn! 7 Hafið drynji og lofi Drottin! Jörðin og íbúar hennar reki upp fagnaðaróp! 8 Fossarnir klappi lof í lófa og klettarnir syngi gleðisöng, 9 því að Drottinn mun dæma heiminn í réttlæti sínu og af réttvísi.

< Sálmarnir 98 >