< Sálmarnir 8 >

1 Ó, Drottinn Guð, mikið er nafn þitt! Jörðin er full af dýrð þinni og himnarnir endurspegla mikilleik þinn. 2 Þú hefur kennt börnum að lofsyngja þér. Fyrirmynd þeirra og vitnisburður þaggi niður í óvinum þínum og valdi þeim skömm. 3 Þegar ég horfi á himininn og skoða verk handa þinna, tunglið og stjörnurnar sem þú hefur skapað – 4 þá undrast ég að þú skulir minnast mannsins, láta þér umhugað um mannanna börn. 5 Og líka, að þú lést manninn verða litlu minni en Guð! Krýndir hann sæmd og heiðri! 6 Þú hefur sett hann yfir allt sem þú hefur skapað, allt er honum undirgefið: 7 Uxar og allur annar fénaður, villidýrin 8 fuglar og fiskar, já, allt sem í sjónum syndir. 9 Ó, Drottinn Guð, hversu dýrlegt er nafn þitt um alla jörðina!

< Sálmarnir 8 >