< Sálmarnir 75 >

1 Þökk sé þér Drottinn! Máttarverk þín staðfesta umhyggju þína. 2 „Já, “svarar Drottinn, „og þegar stundin er komin mun ég refsa öllum illgjörðamönnum! 3 Þótt jörðin nötri og íbúar hennar skjálfi af ótta, eru undirstöður hennar traustar, enda verk handa minna!“ 4 Ég sagði hinum hrokafullu að láta af drambi sínu og illmennunum að hætta sínum ögrandi augnagotum, 5 að láta af þrjósku og hroka. 6 Velgengni og völd getur enginn þakkað sér sjálfum, 7 allt eru það gjafir frá Guði. Hann upphefur einn, en niðurlægir annan. 8 Drottinn heldur á bikar fullum af freyðandi víni – það er dómurinn gegn illmennum heimsins. Þau skulu drekka hann í botn! 9 En ég mun vegsama Guð um aldur og ævi. 10 Styrkur hinna óguðlegu verður að engu, en réttlátir skulu ríkja með reisn.

< Sálmarnir 75 >