< Sálmarnir 67 >

1 Ó, veittu okkur miskunn þína og náð! Leyfðu okkur að sjá þig og kærleika þinn. 2 Leyfðu öllum mönnum að fá að kynnast þér og þekkja hjálpræði þitt. 3 Allar þjóðir skulu lofa Drottin. 4 Þær skulu fagna og gleðjast, því að þú færir þeim réttlæti, og leiðir þær um réttan veg. 5 Allur heimurinn lofi þig, ó Guð! Já, allar þjóðir í heiminum flytji þér þakkargjörð! 6 Því að uppskera jarðarinnar varð mikil og Guð, hefur blessað okkur ríkulega. 7 Og hann blessi okkur áfram svo að allar þjóðir megi óttast hann og elska.

< Sálmarnir 67 >