< Sálmarnir 64 >

1 Ó, Drottinn, hlustaðu á neyðaróp mitt, verndaðu mig!
In finem, Psalmus David. Exaudi Deus orationem meam cum deprecor: a timore inimici eripe animam meam.
2 því að hópur af þorpurum og bófum hafa gert samsæri gegn mér.
Protexisti me a conventu malignantium: a multitudine operantium iniquitatem.
3 Orð þeirra eru eins og rýtingur í bakið. Þeir hvæsa á mig og nísta hjarta mitt.
Quia exacuerunt ut gladium linguas suas: intenderunt arcum rem amaram,
4 Þeir senda mér kaldar kveðjur úr launsátri, vinna verk sín í skyndi, eru hvergi smeykir.
ut sagittent in occultis immaculatum.
5 Þeir sitja á svikráðum. Hittast á laun og leggja gildrur fyrir aðra. „Þetta sér enginn, “segja þeir.
Subito sagittabunt eum, et non timebunt: firmaverunt sibi sermonem nequam. Narraverunt ut absconderent laqueos: dixerunt: Quis videbit eos?
6 Þeir upphugsa ill verk og segja „Nú er allt klappað og klárt!“Hjörtu þeirra fyllast illsku og svikum.
Scrutati sunt iniquitates: defecerunt scrutantes scrutinio. Accedet homo ad cor altum:
7 En Guð mun slá þá til jarðar. Eins og hendi sé veifað hittir örin þá
et exaltabitur Deus. Sagittæ parvulorum factæ sunt plagæ eorum:
8 Tunga þeirra verður þeim að falli. Menn hrista höfuðið yfir þeim og
et infirmatæ sunt contra eos linguæ eorum. Conturbati sunt omnes qui videbant eos:
9 ótta slær á alla. Þeir játa mikilleik Guðs og hans voldugu verk, gefa gætur að því sem hann gerir.
et timuit omnis homo. Et annunciaverunt opera Dei: et facta eius intellexerunt.
10 En hinir trúuðu munu fagna í Drottni, leita hjálpar hans og hrósa sigri með honum.
Lætabitur iustus in Domino, et sperabit in eo, et laudabuntur omnes recti corde.

< Sálmarnir 64 >