< Sálmarnir 63 >

1 Þennan sálm orti Davíð þegar hann leitaði skjóls í Júdeueyðimörkinni. Ó, þú Guð minn, ég leita þín! Mig þyrstir eftir þér í þessari skrælnuðu eyðimörk. Ó, hve ég þrái þig! 2 Þegar ég gekk um í helgidómi þínum þá leitaði ég þín, þráði að sjá veldi þitt og dýrð. 3 Miskunn þín er betri en lífið sjálft! Með vörum mínum lofa ég þig. 4 Ég vil lofa þig svo lengi sem ég lifi, lyfta höndum mínum í bæn til þín. 5 Þá mun sál mín mettast og verða glöð, og munnur minn lofa þig með fögnuði. 6 Ég ligg andvaka um nætur og hugsa um þig, rifja upp öll þau skipti sem þú hefur hjálpað. 7 Þá fyllist ég gleði, finn mig öruggan hjá þér. 8 Ég vil halda mér fast við þig, og styðjast við þína sterku hönd. 9 Þeir munu sjálfir deyja sem brugga mér banaráð, og hverfa niður til heljar. (questioned) 10 Þeir munu falla fyrir sverði, verða sjakölum að bráð. 11 Ég vil gleðjast í Guði! Og þeir sem honum treysta skulu fagna sigri því að munni lygaranna hefur verið lokað.

< Sálmarnir 63 >