< Sálmarnir 61 >

1 Ó, Guð, heyrðu hróp mitt! Hlustaðu á bæn mína. 2 Því að hvar sem ég fer, jafnvel um endimörk jarðar, þá hrópa ég eftir hjálp þinni. Þegar hjarta mitt örmagnast og ég get ekki meir, þá lyftu mér á klett, hjálpræðisbjargið þitt góða, mitt örugga skjól. 3 Þú ert skjól mitt, háreist borg, ókleif óvinum. 4 Í helgidómi þínum mun ég búa að eilífu, öruggur í skjóli vængja þinna, 5 Því að þú, ó Guð, hefur heyrt heit mín og uppfyllt óskir þeirra sem óttast þig og heiðra nafn þitt. 6 Þú munt lengja lífdaga mína og láta ævi konungsins vara frá kyni til kyns. 7 Ég mun lifa frammi fyrir Drottni að eilífu! Lát elsku þína og trúfesti gæta mín, 8 þá mun ég lofa nafn þitt um aldur og ævi og efna heit mín dag eftir dag.

< Sálmarnir 61 >