< Sálmarnir 53 >

1 En sú heimska að segja: „Guð er ekki til.“Hvers vegna segja menn slíkt? Vegna þess að hjörtu þeirra eru spillt og verk þeirra vond. 2 Guð lítur niður af himni. Hann rennir augum yfir mannanna börn. Skyldi nokkur vera hygginn og leita vilja Guðs? 3 Nei, allir hafa þeir snúið í hann baki. Þeir eru spilltir. Enginn þeirra gerir vilja Guðs, ekki einn einasti! 4 Þeir munu fá sinn dóm, illgjörðamennirnir sem ofsækja lýð Guðs. 5 Þeir munu þjást af ótta, jafnvel þegar engin hætta er! Guð mun á sínum tíma tvístra þeim. Hann hefur fellt sinn dóm og hafnað þeim. 6 Ó, að Guð kæmi frá Síon og frelsaði Ísrael! Þá munum við taka gleði okkar á ný.

< Sálmarnir 53 >