< Sálmarnir 4 >

1 Þú, Guð réttlætis míns, þú sem hefur annast mig í öllum mínum erfiðleikum. Hlusta nú þegar ég kalla á nýjan leik. Miskunna þú mér. Heyr bæn mína. 2 Drottinn Guð spyr: „Þið mannanna börn, ætlið þið endalaust að vanhelga nafn mitt með því að tilbiðja þessa heimskulegu hjáguði? Vitið þið ekki að heiður þeirra er bull og hégómi?“ 3 Takið eftir: Drottinn hefur sýnt mér mikla náð og hann mun hlusta og svara mér þegar ég kalla. 4 Sýnið Drottni óttablandna lotningu og syndgið ekki gegn honum. Hugsið um þetta í hvílum ykkar og verið þögul. 5 Setjið traust ykkar á Drottin, og færið honum þóknanlegar fórnir. 6 Margir spyrja hvar hjálp sé að fá. Drottinn, þú ert sá sem hjálpar. Láttu ljós þitt lýsa okkur. 7 Gleðin sem þú hefur veitt mér er mun meiri en þeirra sem gleðjast yfir ríkulegri uppskeru. 8 Nú leggst ég til hvíldar í friði og sofna, því þú, Drottinn verndar mig gegn öllu illu.

< Sálmarnir 4 >