< Sálmarnir 3 >

1 Sálmur eftir Davíð þegar hann flúði frá Absalon, syni sínum. Ó, Drottinn, það eru svo margir á móti mér, svo margir sem gera uppreisn gegn mér. 2 Menn segja að Guð muni alls ekki hjálpa mér. 3 En, Drottinn, þú ert skjöldur minn, sæmd mín og von. Þú lætur mig bera höfuðið hátt, þrátt fyrir allt. 4 Ég hrópaði til Drottins og hann svaraði mér frá musteri sínu í Jerúsalem. 5 Þá lagðist ég fyrir og sofnaði í friði. Síðar vaknaði ég öruggur, því að Drottinn gætir mín. 6 Nú er ég óhræddur, jafnvel þótt tíu þúsund óvinir umkringi mig! 7 Ég mun hrópa til Drottins: „Drottinn, rís þú upp! Bjargaðu mér, þú Guð minn!“Og hann mun slá óvini mína og brjóta tennur illvirkjanna. 8 Hjálpin kemur frá Guði. Blessun hans hvílir yfir þjóð hans.

< Sálmarnir 3 >