< Sálmarnir 23 >

1 Drottinn er minn hirðir, mig mun ekkert skorta. 2 Hann lætur mig hvílast á grænum grundum og njóta næðis hjá lygnum vötnum. 3 Hann hressir mig og styrkir og leiðir mig réttan veg. Hann hjálpar mér, nafni sínu til vegsemdar. 4 Og jafnvel þótt ég fari um dimman dal, óttast ég ekkert illt, því að þú ert hjá mér og hughreystir mig! 5 Já, og þú heldur mér veislu frammi fyrir fjendum mínum og þeir geta ekkert við því gert! Þú smyrð höfuð mitt með blessun og annast ríkulega allar mínar þarfir. 6 Gæska þín og velþóknun fylgja mér alla ævidaga mína og síðan fæ ég að búa hjá þér að eilífu!

< Sálmarnir 23 >