< Sálmarnir 150 +

1 Hallelúja! Lofið Drottin! Lofið hann í musteri hans, lofið hann á himnum. 2 Lofið hann fyrir máttarverk hans. Lofið hann fyrir mikilleik hátignar hans. 3 Lofið hann með lúðrablæstri, hörpu og gígju. 4 Lofið hann með strengjaleik og hjarðpípum. 5 Lofið hann með hljómandi skálabumbum, já og með hvellum skálabumbum! 6 Allt sem andardrátt hefur lofi Drottin! Einnig þú! Hallelúja!

< Sálmarnir 150 +