< Sálmarnir 149 >

1 Hallelúja! Lofið Drottin! Syngið honum nýjan söng. Lofsyngið honum öll þjóðin. 2 Ó, Ísrael, gleð þig yfir skapara þínum. Þið sem búið í Jerúsalem, fagnið yfir konungi ykkar! 3 Lofið nafn hans með gleðidansi og leikið fyrir hann á bumbur og gígjur. 4 Drottinn hefur unun af lýð sínum. Hann frelsar hina auðmjúku. 5 Hinir trúuðu gleðjist með sæmd og syngi fagnandi í hvílum sínum. 6 Lofið hann, þið fólk hans! 7 Framkvæmið refsingu hans á þjóðunum með tvíeggjuðu sverði. 8 Setjið konunga þeirra og fyrirmenn í járn og fullnægið á þeim skráðum dómi. 9 Drottinn er vegsemd þjóðar sinnar. Hallelúja!

< Sálmarnir 149 >