< Sálmarnir 142 >

1 Ég bið og bið til Drottins, 2 stöðugt grátbæni ég hann. 3 Ég er hræddur og ráðvilltur. Þú einn þekkir leiðina framhjá gildrum óvina minna. 4 Enginn maður hugsar hlýtt til mín. Hvergi er góð ráð að fá. Öllum er sama um mig. 5 Því bið ég til Drottins og segi: „Drottinn, þú einn ert skjól mitt á jörðu, ég er hvergi öruggur nema hjá þér. 6 Heyrðu hróp mitt því að ég er mjög þjakaður. Frelsaðu mig frá þeim sem ofsækja mig, því að þeir eru mér yfirsterkari. 7 Leiddu mig úr þessum mikla vanda og þá mun ég lofa þig. Hinir guðhræddu munu þyrpast til mín og fagna með mér yfir hjálp þinni.“

< Sálmarnir 142 >