< Sálmarnir 141 >

1 Drottinn, þú hefur hlustað á bæn mína, svaraðu mér fljótt! Heyr þegar ég hrópa til þín eftir hjálp. 2 Líttu á bæn mína sem kvöldfórn, eins og reykelsi sem stígur upp til þín. 3 Hjálpaðu mér, Drottinn, að gæta munns míns – innsiglaðu varir mínar! 4 Frelsaðu mig frá löngun í hið illa. Forðaðu mér frá félagsskap við syndara og þeirra vondu verkum. Láttu mig sneiða hjá svallveislum þeirra. 5 Hirting frá guðhræddum manni er mér til góðs – hún er áhrifaríkt læknislyf! Ég vil ekki hlusta á hrós vondra manna. Ég bið gegn illsku þeirra og svikum. 6 Þegar foringjar þeirra fá sinn dóm, þegar þeim verður hrint fram af kletti, 7 þá munu menn þessir hlusta á viðvörun mína og skilja að ég vildi þeim vel. (Sheol h7585) 8 Drottinn, ég horfi til þín í von um hjálp. Þú ert skjól mitt. Láttu þá ekki tortíma mér. 9 Forðaðu mér frá gildrum þeirra. 10 Hinir óguðlegu falli í eigin net, en ég sleppi heill á húfi.

< Sálmarnir 141 >