< Sálmarnir 140 >

1 Ó, Drottinn, frelsaðu mig frá vondum mönnum. Verndaðu mig gegn ofbeldismönnunum 2 sem sitja á svikráðum alla daga og vekja ófrið. 3 Orð þeirra eru eins og eitruð höggormsbit. 4 Varðveittu mig gegn ofbeldi þeirra og svikráðum. 5 Þessir ofríkismenn hafa lagt gildru fyrir mig, sett út snöru sína. Þeir bíða þess að geta kastað yfir mig neti, flækja mig í möskva sína. 6 Ó, Drottinn, þú ert minn Guð! Hlustaðu á grátbeiðni mína! 7 Láttu ekki svikráð níðinganna heppnast. 8 Láttu þá ekki ná árangri eða hreykja sér hátt. 9 Svikráð þeirra komi þeim sjálfum í koll! 10 Eldsglóðum rigni yfir þá. Steyptu þeim í gjár sem þeir komast ekki úr. 11 Láttu lygara einskis ávinnings njóta í landi okkar, en refsaðu þeim í skyndi. 12 Drottinn mun örugglega rétta hlut fólks sem þolað hefur ofsóknir þeirra, hann mun flytja mál hinna snauðu. 13 Hinir guðhræddu þakka þér. Þeir fá að lifa í nálægð þinni.

< Sálmarnir 140 >