< Sálmarnir 137 >

1 Við sátum á bökkum Babylonsfljóts og minntumst Jerúsalem – og grétum. 2 Gígjurnar höfum við lagt til hliðar, hengt þær á greinar pílviðarins. 3 Hvernig eigum við að geta sungið? 4 Samt heimta kúgarar okkar söng, vilja að við syngjum gleðiljóð frá Síon! 5 Ef ég gleymi þér Jerúsalem, þá visni mín hægri hönd! 6 Ef ég elska annað umfram Jerúsalem, þá sé mér mátulegt að missa málið og tapa röddinni. 7 Ó, Drottinn, gleymdu ekki orðum Edómíta, daginn þegar Babyloníumenn hernámu Jerúsalem. „Rífið allt til grunna!“æptu þeir. 8 Þú Babýlon, ófreskja eyðingarinnar, þú munt sjálf verða lögð í rúst. Lengi lifi þeir sem eyða þig – þig sem eyddir okkur. 9 Og heill þeim sem tekur ungbörn þín og slær þeim við stein!

< Sálmarnir 137 >