< Sálmarnir 13 >

1 Hversu lengi ætlar þú Drottinn að gleyma mér – að eilífu, eða hvað? Ætlar þú sífellt að horfa í aðra átt þegar ég er í nauðum staddur? 2 Hve lengi verð ég að byrgja inni angist mína? Hve lengi eiga óvinir mínir að hreykja sér upp yfir mig? 3 Svara mér Drottinn, Guð minn, og sendu mér ljós þitt, annars er úti um mig! 4 Þaggaðu niður í óvinum mínum sem segja: „Við höfum sigrað hann!“Láttu þá ekki hlakka yfir því að ógæfa hendi mig. 5 En, – ég mun treysta þér og miskunn þinni hvað sem á gengur og fagna yfir hjálp þinni! 6 Ég vil lofsyngja Drottni, því að ríkulega blessaði hann mig.

< Sálmarnir 13 >