< Sálmarnir 129 >

1 Allt frá bernsku var ég ofsóttur (það er Ísrael sem talar) 2 og misréttinu linnti ekki – en aldrei var ég þurrkaður út. Aldrei hefur óvinum mínum tekist að uppræta mig! 3 Þótt þeir húðstrýktu mig og tættu bak mitt, þá segi ég samt: 4 „Drottinn er góður!“Því að hann braut hlekkina sem illmennin höfðu fjötrað mig með. 5 Þeir sem hata Jerúsalem skulu verða til skammar og flýja. 6 Þeir skulu vera eins og gras á þaki – það skrælnar áður en það hefur vaxið og myndað fræ. 7 Sláttumaðurinn mun grípa í tómt og sá sem bindur fær ekki neitt. 8 Þeir sem framhjá fara skulu ekki óska þér blessunar. En við ykkur segjum við: „Drottinn blessi þig!“

< Sálmarnir 129 >