< Sálmarnir 127 >

1 Ef hús er ekki byggt að ráði Drottins, erfiða smiðirnir til ónýtis. Ef Drottinn verndar ekki borgina, vaka verðirnir til einskis. 2 Hvers vegna þrælar þú myrkranna á milli af ótta við skort? Veistu ekki að Guð vill að vinir hans fái þá hvíld sem þeir þarfnast? Á meðan þeir sofa, blessar hann þá með gjöfum. 3 Börnin eru gjöf frá Guði, ávöxtur móðurkviðar og laun frá Drottni. 4 Börn sem maður eignast ungur, eru eins og beittar örvar – þau koma síðar að gagni! 5 Sæll er sá maður sem hefur fyllt örvamæli sinn með þeim! Hann mun ekki verða til skammar þegar hann þarf að útkljá deilumál við óvini sína!

< Sálmarnir 127 >