< Sálmarnir 121 >

1 Ég horfi til fjallanna, þar sem Jerúsalem rís. Hvaðan skyldi ég fá hjálp? 2 Hjálp mín kemur frá Drottni, skapara himins og jarðar! 3 Hann mun aldrei láta mig hrasa eða falla. 4 Hann gætir mín öllum stundum og sefur ekki á verðinum. 5 Sjálfur Drottinn gætir þín! Hugleiddu það! Hann verndar þig gegn öllu illu og er þér alltaf nær. 6 Hann verndar þig jafnt daga sem nætur. 7 Hann frelsar þig frá illu og heldur í þér lífinu. 8 Hann hefur augun á þér hvort sem þú gengur út eða inn, já hann varðveitir þig alla daga og að eilífu.

< Sálmarnir 121 >