< Sálmarnir 110 >

1 Guð sagði við minn Drottin – við Krist: „Þú skalt ráða og ríkja mér við hlið. Ég mun sigra óvini þína og láta þá þjóna þér.“ 2 Guð hefur reist þér hásæti í Jerúsalem og þaðan muntu drottna yfir óvinum þínum. 3 Þegar konungsvald þitt verður lýðum ljóst, mun þjóð þín flýta sér á þinn fund og æskufólk þitt íklæðast helgum skrúða. Eins og döggin er ný á hverjum morgni, eins mun styrkur minn endurnýjast dag eftir dag. 4 Guð hefur unnið mér eið – og hann iðrast þess ekki – að þú ert prestur að eilífu að hætti Melkísedeks. 5 Guð er þér til hægri handar til að vernda þig. Þegar reiðidómur hans verður birtur mun hann fella marga konunga til jarðar. 6 Hann mun refsa þjóðunum, lík þeirra munu liggja út um allt. Hann mun mölva höfuð þeirra. 7 Á leiðinni drekkur hann úr lindinni við veginn og ber höfuðið hátt.

< Sálmarnir 110 >