< Fílemonsbréfið 1 >

1 Frá Páli, sem er í fangelsi fyrir að boða fagnaðarerindið um Jesú Krist, og frá bróður Tímóteusi. Til Fílemons, okkar kæra samstarfsmanns, og hinna trúuðu, sem koma saman á heimili þínu, 2 til Appíu systur okkar og Arkippusar, sem berst fyrir málstað krossins eins og ég. 3 Guð, faðirinn, og Drottinn Jesús Kristur blessi ykkur og gefi ykkur frið. 4 Kæri Fílemon, ég þakka Guði í hvert sinn sem ég bið fyrir þér, 5 því að ég hef heyrt um traust þitt til Drottins Jesú og kærleika þinn til hinna kristnu. 6 Ég bið þess að vitnisburður þinn nái hjörtum áheyrenda þinna og að þeir sjái hve auðugur þú ert að góðum verkum, í trúnni á Jesú Krist. 7 Kærleikur þinn, bróðir kær, hefur bæði glatt mig og huggað, því að góðvild þín hefur oft endurnært hjörtu þeirra sem tilheyra Guði. 8 Nú langar mig að biðja þig að gera mér greiða. Ég gæti að vísu krafið þig um þetta í nafni Jesú Krists, því að það er skylda þín. En ég elska þig og vil heldur fara bónarveginn, því ég er nú eins og ég er, hann Páll gamli, og sit þar að auki í fangelsi vegna Jesú Krists. 9 10 Bón mín er sú að þú hjálpir honum Onesímusi, barninu mínu, sem ég leiddi til Krists hér í fangelsinu. 11 Onesímus (sem merkir „gagnlegur“) hefur ekki komið þér að miklu gagni upp á síðkastið, en nú ætlar hann að verða okkur báðum hjálplegur. 12 Ég sendi hann hér með aftur til þín, enda þótt hann sé mér sem hjartað úr brjósti mínu. 13 Ég hefði svo gjarnan viljað hafa hann hjá mér á meðan ég sit í fangelsi fyrir að predika gleðiboðskapinn. Á þann hátt gætir þú létt undir með mér, 14 en ég vildi ekki gera þetta án samþykkis þíns. Ég vil ekki þvinga þig til að hjálpa mér, heldur að þú gerir það af fúsum vilja. 15 Kannski getum við lýst því sem gerst hefur á þennan hátt: Hann strauk frá þér um stund, til þess síðan að geta verið hjá þér það sem eftir er. (aiōnios g166) 16 En nú er hann meira en þræll, hann er annað og miklu betra: Elskaður bróðir – þannig er hann í mínum augum. Framvegis verður hann þér miklu meira virði, því að hann er ekki einungis þjónn, heldur líka bróðir þinn í Kristi. 17 Fyrst ég er vinur þinn, taktu þá á móti honum eins og það væri ég sjálfur. 18 Hafi hann valdið þér tjóni á einhvern hátt eða haft eitthvað af þér, skrifaðu það þá á minn reikning, og ég skal endurgreiða þér. Ég, Páll, ábyrgist þetta persónulega og staðfesti það hér með eigin hendi, en ég skal ekki minnast á hve mikið þú skuldar mér. Sannleikurinn er sá að þú skuldar mér jafnvel fyrir þína eigin sál! 19 20 Já, kæri bróðir, gleddu mig með slíku kærleiksverki og hresstu hjarta mitt í Drottni. 21 Ég hef skrifað þér þetta bréf vegna þess að ég álít að þú munir gera það, sem ég bið þig um, og jafnvel enn meira! 22 Viltu hafa herbergi til reiðu handa mér þegar ég kem? Ég vona nefnilega að Guð svari bænum ykkar og leyfi mér að koma til ykkar áður en langt um líður. 23 Epafras, samfangi minn, sem einnig er hér fyrir að predika Krist Jesú, sendir ykkur kveðju sína. 24 Markús, Aristarkus, Demas og Lúkas, samverkamenn mínir, senda einnig kveðjur. 25 Blessun Drottins Jesú Krists sé með anda þínum. Páll

< Fílemonsbréfið 1 >