< Lúkas 3 >

1 Á fimmtánda stjórnarári Tíberíusar keisara, komu boð frá Guði til Jóhannesar (Sakaríassonar) þar sem hann hafðist við úti í eyðimörkinni. Þegar þetta gerðist var Pílatus landstjóri í Júdeu, Heródes héraðsstjóri í Galíleu og bróðir hans, Filippus, í Átúreu og Trakónítis. Lýsanías var yfir Ablílene og Annas og Kaífas voru æðstuprestar.
In the fiftenthe yeer of the empire of Tiberie, the emperoure, whanne Pilat of Pounce gouernede Judee, and Eroude was prince of Galilee, and Filip, his brothir, was prince of Iturye, and of the cuntre of Tracon, and Lisanye was prince of Abilyn,
2
vndir the princis of prestis Annas and Caifas, the word of the Lord was maad on Joon, the sone of Zacarie, in desert.
3 Þá lagði Jóhannes leið sína til ýmissa staða beggja megin Jórdanar og bauð fólkinu að láta skírast og sýna með því að það hefði snúið sér frá syndinni og til Guðs, til að fá fyrirgefningu.
And he cam in to al the cuntre of Jordan, and prechide baptym of penaunce in to remyssioun of synnes.
4 Þannig lýsti Jesaja spámaður Jóhannesi: „Rödd hrópar í auðninni: „Ryðjið Drottni veg! Fyllið upp dalina!
As it is wrytun in the book of the wordis of Isaye, the prophete, The voice of a crier in desert, Make ye redi the weie of the Lord, make ye hise pathis riyt.
5 Jafnið fjöllin við jörðu! Gerið brautirnar beinar!
Ech valey schal be fulfillid, and euery hil and litil hil schal be maad lowe; and schrewid thingis schulen ben in to dressid thingis, and scharp thingis in to pleyn weies;
6 Og mannkynið allt mun sjá hjálpræði Guðs!““
and euery fleisch schal se the heelthe of God.
7 Hér er lítið sýnishorn af því sem Jóhannes sagði við fólkið þegar það kom til að láta skírast: „Þið höggormsafkvæmi! Þið viljið skírast, svo að þið komist hjá því að taka afleiðingum synda ykkar, en samt viljið þið ekki snúa ykkur til Guðs af heilum hug!
Therfor he seid to the puple, which wente out to be baptisid of hym, Kyndlyngis of eddris, who schewide to you to fle fro the wraththe to comynge?
8 Nei, farið fyrst og sýnið með líferni ykkar að þið hafið í raun og veru tekið nýja stefnu. Þið skuluð ekki halda að ykkur sé borgið vegna þess að þið eruð afkomendur Abrahams, nei, það nægir ekki. Guð getur skapað Abrahamssyni af þessu grjóti!
Therfor do ye worthi fruytis of penaunce, and bigynne ye not to seie, We han a fadir Abraham; for Y seie to you, that God is myyti to reise of these stoonys the sones of Abraham.
9 Öxi dómarans er reidd gegn ykkur og þið verðið höggvin upp frá rótum. Sérhvert tré, sem ekki ber góðan ávöxt, verður fellt og því kastað í eldinn.“
And now an axe is sett to the roote of the tree; and therfor euery tre that makith no good fruyt, schal be kit doun, and schal be cast in to the fier.
10 „Hvað viltu að við gerum?“spurði fólkið.
And the puple axide hym, and seiden, What thanne schulen we do?
11 „Sá sem á tvær skyrtur, gefi aðra fátækum og ef þið eigið umframbirgðir af mat, þá gefið þær hungruðum, “svaraði hann.
He answeride, and seide to hem, He that hath twei cootis, yyue to hym that hath noon; and he that hath metis, do in lijk maner.
12 Jafnvel skattheimtumenn, sem þekktir voru fyrir að stela, komu til að láta skírast. Þeir spurðu: „Með hverju getum við sýnt að við höfum iðrast synda okkar?“
And pupplicans camen to be baptisid; and thei seiden to hym, Maister, what schulen we do?
13 „Með því að vera heiðarlegir, “svaraði Jóhannes. „Gætið þess að taka ekki hærri skatta af fólkinu en rómversku yfirvöldin krefjast.“
And he seide to hem, Do ye no thing more, than that that is ordeyned to you.
14 „En við, “sögðu nokkrir hermenn, „hvað með okkur?“Jóhannes svaraði: „Reynið ekki að komast yfir peninga með ógnunum og ofbeldi. Dæmið engan ranglega og látið ykkur nægja laun ykkar.“
And knyytis axiden hym, and seiden, What schulen also we do? And he seide to hem, Smyte ye wrongfuli no man, nethir make ye fals chalenge, and be ye apayed with youre sowdis.
15 Nú hafði vaknað eftirvænting hjá fólkinu og töldu margir jafnvel að Jóhannes væri Kristur.
Whanne al the puple gesside, and alle men thouyten in her hertis of Joon, lest perauenture he were Crist,
16 En Jóhannes sagði: „Ég skíri aðeins með vatni, en bráðlega kemur sá sem hefur miklu meira vald en ég. Sannleikurinn er sá að ég er ekki einu sinni verður þess að vera þræll hans. Hann mun skíra ykkur með heilögum anda og eldi.
Joon answeride, and seide to alle men, Y baptize you in watir; but a stronger than Y schal come aftir me, of whom Y am not worthi to vnbynde the lace of his schoon; he schal baptize you in the Hooli Goost and fier.
17 Hismið mun hann skilja frá korninu og brenna það í óslökkvandi eldi, en geyma kornið og setja í hlöður sínar.“
Whos `wynewyng tool in his hond, and he schal purge his floor of corn, and schal gadere the whete in to his berne; but the chaffis he schal brenne with fier vnquenchable.
18 Margar slíkar viðvaranir flutti Jóhannes fólkinu um leið og hann boðaði því gleðitíðindin.
And many othere thingis also he spak, and prechide to the puple. But Eroude tetrark, whanne he was blamed of Joon for Erodias,
19 (En þegar Jóhannes gagnrýndi Heródes, landstjóra Galíleu, opinberlega fyrir að kvænast Heródías, konu bróður síns, og fyrir marga aðra óhæfu, lét Heródes varpa honum í fangelsi og jók þar með enn við syndir sínar.)
the wijf of his brother, and for alle the yuelis that Eroude dide,
encreside this ouer alle, and schitte Joon in prisoun.
21 Dag einn bættist Jesús í þann stóra hóp, sem tók skírn hjá Jóhannesi. Á meðan hann var að biðjast fyrir, opnuðust himnarnir,
And it was don, whanne al the puple was baptised, and whanne Jhesu was baptised, and preiede, heuene was openyd.
22 og heilagur andi kom yfir hann í dúfulíki. Þá heyrðist rödd af himni sem sagði: „Þú ert minn elskaði sonur, sem ég hef velþóknun á.“
And the Hooli Goost cam doun in bodili licnesse, as a dowue on hym; and a vois was maad fro heuene, Thou art my derworth sone, in thee it hath plesid to me.
23 Jesús var um þrítugt, þegar hann hóf starf sitt meðal fólksins. Almennt var litið á Jesú sem son Jósefs, Jósef var sonur Elí,
And Jhesu hym silf was bigynninge as of thritti yeer, that he was gessid the sone of Joseph, which was of Heli,
24 Elí var sonur Mattats, Mattat var sonur Leví, Leví var sonur Melkí, Melkí var sonur Jannaí, Jannaí var sonur Jósefs,
which was of Mathath, which was of Leuy, which was of Melchi, that was of Jamne,
25 Jósef var sonur Mattatíasar, Mattatías var sonur Amosar, Amos var sonur Naúms, Naúm var sonur Eslí, Eslí var sonur Naggaí,
that was of Joseph, that was of Matatie, that was of Amos, that was of Naum, that was of Hely, that was of Nagge,
26 Naggaí var sonur Maats, Maat var sonur Mattatíasar, Mattatías var sonur Semeíns, Semeín var sonur Jóseks, Jósek var sonur Jóda,
that was of Mathath, that was of Matatie, that was of Semei, that was of Joseph, that was of Juda, that was of Johanna,
27 Jóda var sonur Jóhanans, Jóhanan var sonur Hresa, Hresa var sonur Serúbabels, Serúbabel var sonur Sealtíels, Sealtíel var sonur Nerí,
that was of Resa, that was of Zorobabel, that was of Salatiel,
28 Nerí var sonur Melkí, Melkí var sonur Addí, Addí var sonur Kósams, Kósam var sonur Elmadams, Elmadam var sonur Ers,
that was of Neri, that was of Melchi, that was of Addi, that was of Cosan, that was of Elmadan, that was of Her,
29 Ers var sonur Jesú, Jesús var sonur Elíesers, Elíeser var sonur Jóríms, Jórím var sonur Mattats, Mattat var sonur Leví,
that was of Jhesu, that was of Eleasar, that was of Jorum, that was of Matath,
30 Leví var sonur Símeons, Símeon var sonur Júda, Júda var sonur Jósefs, Jósef var sonur Jónams, Jónam var sonur Eljakíms,
that was of Leuy, that was of Symeon, that was of Juda, that was of Joseph, that was of Jona, that was of Eliachym,
31 Eljakím var sonur Melea, Melea var sonur Menna, Menna var sonur Mattata, Mattata var sonur Natans, Natan var sonur Davíðs,
that was of Melca, that was of Menna, that of Mathatha, that was of Nathan,
32 Davíð var sonur Ásaí, Ásaí var sonur Óbeðs, Óbeð var sonur Bóasar, Bóas var sonur Salmons, Salmon var sonur Nahsons,
that was of Dauid, that was of Jesse, that was of Obeth, that was of Boz, that was of Salmon, that was of Nason,
33 Nahson var sonur Ammínadabs, Ammínadab var sonur Arní, Arní var sonur Esroms, Esrom varsonur Peres, Peres var sonur Júda,
that was of Amynadab, that was of Aram, that was of Esrom, that was of Fares,
34 Júda var sonur Jakobs, Jakob var sonur Ásaks, Ásak var sonur Abrahams, Abraham var sonur Tara, Tara var sonur Nakórs,
that was of Judas, that was of Jacob, that was of Isaac, that was of Abraham, that was of Tare, that was of Nachor,
35 Nakór var sonur Serúks, Serúk var sonur Reús, Reú var sonur Peleks, Pelek var sonur Ebers, Eber var sonur Sela,
that was of Seruth, that was of Ragau, that was of Faleth, that was of Heber,
36 Sela var sonur Kenans, Kenan var sonur Arpaksads, Arpaksad var sonur Sems, Sem var sonur Nóa,
that was of Sale, that was of Chaynan, that was of Arfaxath, that was of Sem, that was of Noe, that was of Lameth,
37 Nói var sonur Lameks, Lamek var sonur Metúsala, Metúsala var sonur Enoks, Enok var sonur Jareds, Jared var sonur Mahalalels, Mahalalel var sonur Kenans,
that was of Matussale, that was of Enok, that was of Jareth, that was of Malaliel, that was of Cainan, that was of Enos,
38 Kenan var sonur Enoss, Enos var sonur Sets, Set var sonur Adams og faðir Adams var Guð.
that was of Seth, that was of Adam, that was of God.

< Lúkas 3 >