< Lúkas 14 >

1 Svo bar við á helgidegi er Jesús var gestur á heimili eins höfðingja faríseanna, að þeir höfðu gætur á honum, því að þeir vildu vita hvort hann læknaði mann sem þar var og þjáðist af vatnssótt. 2 3 Jesús sneri sér þá að faríseunum og lögvitringunum og spurði: „Stendur það í lögunum að óheimilt sé að lækna á helgidegi?“ 4 Farísearnir svöruðu engu orði. Þá snerti Jesús veika manninn, læknaði hann og lét hann fara. 5 Síðan sneri hann sér að viðstöddum og sagði: „Segið mér, vinnur enginn ykkar handtak á helgidögum? Segjum svo að kýrin ykkar félli í skurð á helgidegi, hvað mynduð þið gera? Láta hana eiga sig?“ 6 En þeir voru orðlausir og gátu engu svarað. 7 Þegar hann veitti því athygli að gestirnir reyndu allir að ná sér í virðulegustu sætin, sagði hann: 8 „Reynið ekki að ná í heiðurssætin í brúðkaupsveislunum! Ef að einhver háttsettari en þú kæmi á eftir þér, 9 þá mundi húsbóndinn leiða hann þangað sem þú sætir og segja við þig: „Leyfðu þessum manni að sitja hér.“Þú yrðir þér til skammar og yrðir að færa þig í autt sæti við neðsta borðið! 10 Sestu heldur fyrst við neðsta borðið og þegar húsbóndinn tekur eftir þér þar, mun hann koma og segja við þig: „Kæri vinur, komdu, við tókum miklu betra sæti frá handa þér.“Þannig mun þér verða sýnd virðing frammi fyrir öllum gestunum. 11 Sá sem upphefur sjálfan sig, mun niðurlægjast, en sá sem lítillækkar sig, hlýtur upphefð.“ 12 Síðan sneri hann sér að húsráðanda og sagði: „Þegar þú býður til veislu, skaltu ekki bjóða vinum þínum, ættingjum eða ríkum nágrönnum, því að þeir munu allir endurgjalda boðið. 13 Bjóddu heldur fátækum, bækluðum, lömuðum og blindum. 14 Og í upprisu hinna trúuðu, mun Guð launa þér fyrir að bjóða þeim sem ekki gátu endurgoldið.“ 15 Þá sagði einn viðstaddra: „Það eru mikil forréttindi að fá að komast inn í guðsríki.“ 16 Jesús sagði honum þá þessa dæmisögu: „Maður nokkur undirbjó mikla veislu og bauð mörgum. 17 Þegar allt var tilbúið sendi hann þjóna sína til að minna boðsgestina á að nú væri stundin komin. 18 En þá fóru allir að afsaka sig. Einn sagði: „Ég er nýbúinn að kaupa jörð og þarf að fara og líta á hana. Ég bið þig að hafa mig afsakaðan.“ 19 Annar sagðist hafa verið að kaupa tíu uxa og nú langaði hann til að reyna þá. 20 Sá þriðji var nýgiftur og gat því ekki komið. 21 Þjónninn sneri þá heim og flutti húsbónda sínum svörin. Þá reiddist húsbóndinn, sagði honum að fara strax út á götur og torg borgarinnar og bjóða betlurum, fötluðum, lömuðum og blindum að koma. 22 Það var gert en samt var hægt að bæta við fleirum. 23 Þá sagði húsbóndinn við þjóninn: „Farðu nú á göturnar sem liggja út úr bænum og líttu bak við limgerðin og hvettu alla sem þú finnur til að koma, svo að hús mitt verði fullt. 24 Enginn þeirra sem ég bauð í fyrstu skal fá að smakka á því sem ég ætlaði þeim.““ 25 Mikill mannfjöldi fylgdi Jesú. Hann sneri sér að fólkinu og ávarpaði það: 26 „Sá sem vill fylgja mér, verður að elska mig meira en föður sinn og móður, meira en konu sína og börn, bræður eða systur. Já, meira en sitt eigið líf, annars getur hann ekki verið lærisveinn minn. 27 Enginn getur verið lærisveinn minn nema hann beri sinn eigin kross og fylgi mér eftir. 28 En takið þó ekki ákvörðun um að fylgja mér, fyrr en þið hafið gert ykkur grein fyrir hvað það kostar ykkur. Hver haldið þið að byrji á húsbyggingu án þess að reikna fyrst út kostnaðinn, til að sjá hvort hann hafi nægilegt fé? 29 Ef hann gerði það ekki, gæti svo farið að hann yrði peningalaus þegar grunnurinn væri búinn. Þá myndu menn gera gys að honum 30 og segja: „Þarna er maðurinn sem fór að byggja en gat ekki lokið við það vegna peningaleysis.“ 31 Og hvaða konungur haldið þið að léti sig dreyma um að fara í stríð án þess að setjast fyrst niður, ásamt ráðgjöfum sínum, til að ræða um hvort hann geti yfirbugað 20.000 manna óvinalið með 10.000 mönnum? 32 Ef niðurstaðan yrði neikvæð, mundi hann senda samninganefnd til óvinanna til að ræða friðarskilmála. 33 Af þessu sjáið þið að enginn getur orðið lærisveinn minn nema hann vilji hafna öllu öðru mín vegna. 34 Hvaða gagn er í salti sem misst hefur seltuna? 35 Bragðlaust salt er einskis virði, það dugar ekki einu sinni í áburð. Það er ónýtt og til þess eins að fleygja því. Ef þið skiljið þetta, þá hugleiðið það vel.“

< Lúkas 14 >