< Lúkas 1 >

1 Heiðraði Þeófílus. Nú þegar hafa verið skrifaðar allmargar frásögur um Krist, byggðar á heimildum postulanna og annarra sjónarvotta. 2 3 En ég taldi rétt að rannsaka þessar heimildir á ný frá upphafi til enda, og nú sendi ég þér árangur þeirra nákvæmu athugana sem ég hef gert. 4 Þetta geri ég til að fullvissa þig um sannleiksgildi þess sem þú hefur heyrt hjá öðrum. 5 Frásaga mín hefst á prestinum Sakaría, sem var uppi á dögum Heródesar konungs í Júdeu. Sakaría var úr flokki Abía, en það var einn af mörgum flokkum musterisþjónanna. Elísabet, kona hans, var einnig af gyðinglegri prestaætt; afkomandi Arons. 6 Þau hjón voru bæði guðrækin og leituðust við að halda boðorð Guðs óaðfinnanlega. 7 Þau voru barnlaus – Elísabet gat ekki átt börn – og auk þess orðin roskin. 8 Dag nokkurn þegar Sakaría var að sinna störfum sínum í musterinu – flokkur hans var einmitt á vakt þá vikuna – féll það í hlut hans að fara inn í musterið og brenna reykelsi frammi fyrir Drottni. 9 10 Eins og ávallt er reykelsisfórnin fór fram, stóð fjöldi fólks fyrir utan musterið á bæn. 11 Allt í einu sá Sakaría engil standa hægra megin við reykelsisaltarið. Honum varð hverft við og hann varð mjög hræddur. 12 13 Engillinn sagði: „Sakaría, vertu óhræddur! Ég kem til að segja þér að Guð hefur heyrt bæn þína. Konan þín, hún Elísabet, mun fæða þér son! Þú skalt láta hann heita Jóhannes. 14 Fæðing hans mun verða ykkur báðum mikið gleðiefni og margir munu samgleðjast ykkur, 15 því hann á eftir að verða einn af hetjum Guðs. Hann má aldrei snerta vín né sterka drykki, en þess í stað mun hann fyllast heilögum anda, meira að segja áður en hann fæðist! 16 Hann mun snúa mörgum Gyðingum til Drottins, Guðs þeirra. 17 Hann verður mikilmenni og máttugur eins og Elía, hinn forni spámaður. Hann mun koma á undan Kristi, búa fólkið undir komu hans og kenna því að elska Drottin eins og forfeður þess gerðu, og lifa sem trúað fólk.“ 18 Þá sagði Sakaría við engilinn: „Já, en þetta er útilokað! Ég er orðinn gamall og konan mín líka.“ 19 Engillinn svaraði: „Ég er Gabríel! Ég stend frammi fyrir hásæti Guðs, sem sendi mig til að flytja þér þessar góðu fréttir 20 En fyrst þú trúðir mér ekki, munt þú verða mállaus þangað til barnið er fætt. Ég ábyrgist að orð mín munu rætast á sínum tíma.“ 21 Fólkið beið eftir Sakaría og undraðist hve honum dvaldist í musterinu. 22 Þegar hann kom út, gat hann ekkert sagt, og fólkið skildi af látbragði hans að hann hlyti að hafa séð sýn inni í musterinu. 23 Eftir þetta dvaldist hann í musterinu sinn tíma og fór síðan heim. 24 Stuttu síðar varð Elísabet kona hans þunguð en hún leyndi því fyrstu fimm mánuðina. 25 „En hvað Drottinn er góður að leysa mig undan þeirri skömm að geta ekki átt barn!“hrópaði hún. 26 Mánuði síðar sendi Guð engilinn Gabríel til meyjar sem María hét og bjó í þorpinu Nasaret í Galíleu. Hún var trúlofuð manni að nafni Jósef og var hann af ætt Davíðs konungs. 27 28 Gabríel birtist henni og sagði: „Sæl, þú hin útvalda! Drottinn er með þér!“ 29 María varð undrandi og reyndi að skilja hvað engillinn ætti við. 30 „Vertu ekki hrædd, María, “sagði engillinn, „Guð ætlar að blessa þig ríkulega. 31 Innan skamms munt þú verða barnshafandi og eignast dreng, sem þú skalt nefna Jesú. 32 Hann mun verða mikill og kallast sonur Guðs. Drottinn Guð mun gefa honum hásæti Davíðs konungs, ættföður hans, 33 og hann mun ríkja yfir Ísrael að eilífu. Á ríki hans mun enginn endir verða!“ (aiōn g165) 34 „Hvernig má það vera?“spurði María, „ég hef ekki karlmanns kennt.“ 35 Engillinn svaraði: „Heilagur andi mun koma yfir þig og kraftur Guðs mun umlykja þig, barnið þitt verður því heilagt sonur Guðs. 36 Nú eru sex mánuðir síðan Elísabet frænka þín óbyrjan, eins og fólk kallaði hana – varð þunguð í elli sinni! 37 Guði er ekkert um megn.“ 38 Og María sagði: „Ég vil hlýða og þjóna Drottni. Verði allt eins og þú sagðir.“Þá hvarf engillinn. 39 Nokkrum dögum síðar fór María til fjallaþorpsins í Júdeu þar sem Sakaría bjó og heimsótti Elísabetu. 40 41 Þegar María heilsaði, tók barn Elísabetar viðbragð í kviði hennar og hún fylltist heilögum anda. 42 Hún hrópaði upp í gleði sinni og sagði við Maríu: „Guð hefur blessað þig umfram allar aðrar konur, og barni þínu er ætluð hin æðsta blessun hans. 43 Hvílíkur heiður fyrir mig að móðir Drottins míns skuli heimsækja mig. 44 Um leið og þú komst inn og heilsaðir mér tók barnið mitt viðbragð af gleði! 45 Þú trúðir að Guð mundi standa við orð sín og þess vegna hefur hann ríkulega blessað þig.“ 46 Og María sagði: „Ó, ég lofa Drottin! 47 Ég gleðst í Guði, frelsara mínum. 48 Hann mundi eftir lítilmótlegri ambátt sinni og héðan í frá munu allar kynslóðir tala um hvernig Guð blessaði mig. 49 Hann, hinn voldugi og heilagi, hefur gert mikla hluti fyrir mig. 50 Miskunn hans við þá sem trúa á hann, varir frá kynslóð til kynslóðar. 51 Hann hefur unnið stórvirki með mætti sínum og tvístrað hinum stoltu og drambsömu. 52 Hann hefur steypt höfðingjum úr hásætum og upphafið auðmjúka. 53 Hann hefur mettað hungraða gæðum og látið ríka fara tómhenta frá sér. 54 Hann hefur hjálpað þjóni sínum, Ísrael, og ekki gleymt loforðum sínum. 55 Hann lofaði feðrum okkar – Abraham og afkomendum hans – að sýna þeim miskunn að eilífu.“ (aiōn g165) 56 Eftir þetta dvaldist María hjá Elísabetu í þrjá mánuði, en að því búnu hélt hún heim. 57 Þegar meðgöngutíma Elísabetar lauk, fæddi hún son. 58 Vinir og ættingjar fréttu fljótt hve góður Drottinn hafði verið Elísabetu og samglöddust henni. 59 Þegar barnið var átta daga gamalt komu þeir til að vera viðstaddir umskurnina. Allir gerðu ráð fyrir að drengurinn yrði látinn heita Sakaría eftir föður sínum, 60 en Elísabet sagði: „Nei, hann á að heita Jóhannes.“ 61 „Hvers vegna?“spurði fólkið undrandi, „það er enginn með því nafni í allri fjölskyldunni!“ 62 Faðir barnsins var síðan spurður með bendingum hvað barnið ætti að heita. 63 Hann bað um spjald og skrifaði á það, öllum til mikillar furðu: „Nafn hans er Jóhannes.“ 64 Á sama andartaki fékk hann málið og lofaði Guð. 65 Nágrannarnir urðu undrandi og fréttin um þetta barst um alla fjallabyggð Júdeu. 66 Þeir sem heyrðu þetta, veltu því vandlega fyrir sér og sögðu: „Hvað skyldi verða úr þessu barni? Hönd Drottins er greinilega með því á sérstakan hátt.“ 67 Sakaría, faðir drengsins, fylltist heilögum anda og spáði: 68 „Lofaður sé Drottinn, Guð Ísraels, því hann hefur vitjað þjóðar sinnar til að bjarga henni. 69 Hann gefur okkur máttugan frelsara af ætt Davíðs konungs, þjóns síns, 70 eins og hinir heilögu spámenn höfðu sagt fyrir, (aiōn g165) 71 til að frelsa okkur undan óvinum okkar og öllum þeim sem hata okkur. 72 Hann sýndi forfeðrum okkar miskunn og minntist síns heilaga loforðs, sem hann gaf Abraham, að frelsa okkur frá óvinum okkar, 73 74 75 helga okkur og gera okkur hæf til að dvelja hjá sér að eilífu. 76 Þú, sonur minn, verður kallaður spámaður almáttugs Guðs, því þú munt ryðja Kristi veg. 77 Þú munt veita fólkinu þekkingu á hjálpræðinu og fyrirgefningu syndanna. 78 Þessu mun kærleikur Guðs og miskunn koma til leiðar, hann sendir okkur ljós sitt. 79 Það mun lýsa þeim er sitja í myrkri og skugga dauðans, og leiða okkur á friðarveg.“ 80 Og drengurinn óx og Guð styrkti hann. Þegar hann hafði aldur til, fór hann út í óbyggðina og dvaldist þar þangað til hann hóf starf sitt meðal þjóðarinnar.

< Lúkas 1 >