< Postulasagan 5 >

1 Annar maður, Ananías, og kona hans, Saffíra, seldu jörð.
아나니아라 하는 사람이 그 아내 삽비라로 더불어 소유를 팔아
2 Hann afhenti postulunum hluta andvirðisins og sagði að það væri heildarsöluverðið.
그 값에서 얼마를 감추매 그 아내도 알더라 얼마를 가져다가 사도들의 발 앞에 두니
3 „Ananías, “sagði Pétur. „Satan hefur blekkt þig. Það er ósatt sem þú sagðir, að þetta væri allt söluverðið. Þú hefur logið að heilögum anda.
베드로가 가로되 `아나니아야, 어찌하여 사단이 네 마음에 가득하여 네가 성령을 속이고 땅 값 얼마를 감추었느냐?
4 Þér var í sjálfsvald sett hvort þú seldir eignina eða ekki. Og þegar þú hafðir selt, var það þitt að ákveða hve mikið þú gæfir. Hvernig gat þér dottið í hug að fara svona að? Þú hefur logið að Guði, en ekki okkur.“
땅이 그대로 있을 때에는 네 땅이 아니며 판 후에도 네 임의로 할 수가 없더냐 어찌하여 이 일을 네 마음에 두었느냐? 사람에게 거짓말 한것이 아니요 하나님께로다'
5 Þegar Ananías heyrði þetta, datt hann dauður niður! Fólk varð skelfingu lostið.
아나니아가 이 말을 듣고 엎드러져 혼이 떠나니 이 일을 듣는 사람이 다 크게 두려워하더라
6 Ungu mennirnir komu og bjuggu um hann, og fóru með hann til greftrunar.
젊은 사람들이 일어나 시신을 싸서 메고 나가 장사하니라
7 Þrem stundum síðar kom kona Ananíasar inn, en hún vissi ekki hvað gerst hafði.
세 시간쯤 지나 그 아내가 그 생긴 일을 알지 못하고 들어오니
8 Pétur gekk til hennar og spurði: „Er þetta allt sem þið fenguð fyrir landið sem þið selduð?“„Já, “svaraði hún, „þetta var verðið.“
베드로가 가로되 `그 땅 판 값이 이것뿐이냐? 내게 말하라' 하니 가로되 `예, 이뿐이로라'
9 Þá sagði Pétur: „Hvernig gat ykkur hjónunum dottið í hug að gera slíkt – prófa hvort heilagur andi kæmist að svikunum? Ungu mennirnir, sem jörðuðu manninn þinn, eru hérna rétt fyrir utan og þeir munu líka bera þig út.“
베드로가 가로되 `너희가 어찌 함께 꾀하여 주의 영을 시험하려 하느냐? 보라, 네 남편을 장사하고 오는 사람들의 발이 문앞에 이르렀으니 또 너를 메어 내가리라' 한대
10 Pétur hafði vart sleppt orðinu er hún féll örend til jarðar! Þegar ungu mennirnir komu inn og sáu að hún var líka dáin, báru þeir hana út og grófu við hlið manns hennar.
곧 베드로의 발 앞에 엎드러져 혼이 떠나는지라 젊은 사람들이 들어와 죽은 것을 보고 메어다가 그 남편곁에 장사하니
11 Þessi atburður vakti ótta meðal allra í söfnuðinum og annarra sem um hann fréttu.
온 교회와 이 일을 듣는 사람들이 다 크게 두려워하니라
12 Postularnir voru vanir að koma saman í þeim hluta musterisins sem kallast súlnagöng Salómons, og þar unnu þeir mörg athyglisverð kraftaverk meðal fólksins.
사도들의 손으로 민간에 표적과 기사가 많이 되매 믿는 사람이 다 마음을 같이하여 솔로몬 행각에 모이고
13 Aðrir áræddu ekki að vera þar með þeim og almennt var borin mikil virðing fyrir þeim.
그 나머지는 감히 그들과 상종하는 사람이 없으나 백성이 칭송하더라
14 Sífellt snerust fleiri til trúar á Drottin, mikill fjöldi karla og kvenna.
믿고 주께로 나오는 자가 더 많으니 남녀의 큰 무리더라
15 Sjúklingar voru bornir á börum og dýnum út á göturnar, í þeirri von að skugginn af Pétri félli á þá, þegar hann ætti leið hjá!
심지어 병든 사람을 메고 거리에 나가 침대와 요 위에 뉘우고 베드로가 지날 때에 혹 그 그림자라도 뉘게 덮일까 바라고
16 Mikill mannfjöldi kom frá úthverfum Jerúsalem og tók fólkið með sér sjúklinga og þá sem höfðu illa anda. Þeir læknuðust allir.
예루살렘 근읍 허다한 사람들도 모여 병든 사람과 더러운 귀신에게 괴로움 받는 사람을 데리고 와서 다 나음을 얻으니라
17 Æðsti presturinn og ættingjar hans og vinir meðal saddúkeanna, brugðust við þessu af mikilli hörku.
대제사장과 그와 함께 있는 사람 즉 사두개인의 당파가 다 마음에 시기가 가득하여 일어나서
18 Létu þeir handtaka postulana og setja þá í gæsluvarðhald.
사도들을 잡아다가 옥에 가두었더니
19 Um nóttina kom engill Drottins, opnaði fangelsishliðin og leiddi þá út. Síðan sagði hann við þá:
주의 사자가 밤에 옥문을 열고 끌어내어 가로되
20 „Farið upp í musterið og predikið boðskap lífsins!“
`가서 성전에 서서 이 생명의 말씀을 다 백성에게 말하라' 하매
21 Þeir komu til musterisins um sólarupprás og fóru strax að predika. Seinna um morguninn kom æðsti presturinn, og fylgdarlið hans, til musterisins og lét hann kalla saman allt ráðið. Því næst sendi hann þjóna til fangelsisins, með boð um að postularnir skyldu leiddir fyrir ráðið.
저희가 듣고 새벽에 성전에 들어가서 가르치더니 대제사장과 그와 함께 있는 사람들이 와서 공회와 이스라엘 족속의 원로들을 다 모으고 사람을 옥에 보내어 사도들을 잡아오라 하니
22 Þegar þjónarnir komu til fangelsisins, gripu þeir í tómt – postularnir voru á bak og burt! Þeir sneru því aftur til ráðsins og sögðu:
관속들이 가서 옥에서 사도들을 보지 못하고 돌아와 말하여
23 „Fangelsisdyrnar voru læstar og verðirnir stóðu fyrir utan, en þegar við opnuðum hliðin, var enginn maður þar inni!“
가로되 `우리가 보니 옥은 든든하게 잠기고 지킨 사람들이 문에 섰으되 문을 열고 본즉 그 안에는 한 사람도 없더이다' 하니
24 Þegar lögreglustjórinn og æðstu prestarnir heyrðu þetta, vissu þeir ekki sitt rjúkandi ráð og veltu fyrir sér hvernig þetta myndi fara.
성전 맡은 자와 제사장들이 이 말을 듣고 의혹하여 이 일이 어찌 될까 하더니
25 Rétt í því kom einhver með þær fréttir, að mennirnir, sem þeir hefðu sett í varðhald, væru að predika í musterinu.
사람이 와서 고하되 `보소서, 옥에 가두었던 사람들이 성전에 서서 백성을 가르치더이다' 하니
26 Lögregluforinginn fór þegar í stað ásamt undirmönnum sínum og tók þá fasta, án ofbeldis því að þeir óttuðust að fólkið réðist á þá, ef þeir færu illa með postulana. Síðan leiddu þeir þá fram fyrir ráðið.
성전 맡은 자가 관속들과 같이 서서 저희를 잡아 왔으나 강제로 못함은 백성들이 돌로 칠까 두려워 함이러라
저희를 끌어다가 공회 앞에 세우니 대제사장이 물어
28 „Sögðum við ykkur ekki að hætta að tala um þennan Jesú?“spurði æðsti presturinn hvasst. „Nú hafið þið fyllt Jerúsalem með boðskap ykkar og reynið í þokkabót að kenna okkur um dauða þessa manns!“
가로되 `우리가 이 이름으로 사람을 가르치지 말라고 엄금하였으되 너희가 너희 교(敎)를 예루살렘에 가득하게 하니 이 사람의 피를 우리에게로 돌리고자 함이로다'
29 Þá svaraði Pétur og hinir postularnir: „Framar ber að hlýða Guði en mönnum.
베드로와 사도들이 대답하여 가로되 `사람보다 하나님을 순종하는 것이 마땅하니라
30 Guð forfeðra okkar vakti Jesú upp frá dauðum, eftir að þið höfðuð líflátið hann með því að hengja hann á kross.
너희가 나무에 달아 죽인 예수를 우리 조상의 하나님이 살리시고
31 Fyrir mátt sinn, hóf Guð hann til þeirrar virðingar að vera bæði konungur og frelsari, svo að Ísraelsþjóðin gæti snúið baki við syndum sínum og fengið fyrirgefningu.
이스라엘로 회개케 하사 죄사함을 얻게 하시려고 그를 오른손으로 높이사 임금과 구주를 삼으셨느니라
32 Um þetta vitnum við ásamt heilögum anda, sem Guð gefur öllum sem honum hlýða.“
우리는 이 일에 증인이요 하나님이 자기를 순종하는 사람들에게 주신 성령도 그러하니라' 하더라
33 Þegar hér var komið, voru meðlimir ráðsins orðnir viti sínu fjær af reiði og ákveðnir í að lífláta postulana.
저희가 듣고 크게 노하여 사도들을 없이하고자 할새
34 En þá stóð upp Gamalíel, meðlimur ráðsins og farísei, sérfræðingur í lögum og vinsæll meðal fólksins. Hann bað um að þeir yrðu látnir fara út úr ráðinu meðan hann talaði.
바리새인 가말리엘은 교법사로 모든 백성에게 존경을 받는 자라 공회 중에 일어나 명하사 사도들을 잠간 밖에 나가게 하고
35 Síðan ávarpaði hann ráðið og sagði: „Ísraelsmenn, íhugið vandlega það sem þið ætlið að gera við þessa menn.
말하되 `이스라엘 사람들아, 너희가 이 사람들에게 대하여 어떻게 하려는 것을 조심하라
36 Fyrir nokkru taldi Þevdas sig mikinn mann. Um 400 menn sóru honum trúnaðareið, en skömmu síðar var hann drepinn og þá lognaðist allt út af.
이전에 드다가 일어나 스스로 자랑하매 사람이 약 사백이나 따르더니 그가 죽임을 당하매 좇던 사람이 다 흩어져 없어졌고
37 Seinna, þegar manntalið var tekið, kom fram Júdas frá Galíleu. Hann safnaði að sér nokkrum lærisveinum, en síðan dó hann og fylgjendur hans tvístruðust.
그 후 호적할 때에 갈릴리 유다가 일어나 백성을 꾀어 좇게 하다가 그도 망한즉 좇던 사람이 다 흩어졌느니라
38 Ég ráðlegg ykkur að láta þessa menn eiga sig. Ef boðskapur þeirra er eigin hugarsmíð, þá mun þetta fljótlega verða að engu.
이제 내가 너희에게 말하노니 이 사람들을 상관 말고 버려두라 이 사상과 소행이 사람에게로서 났으면 무너질 것이요
39 En sé hann frá Guði, þá megnið þið ekki að stöðva þá, það væri að berjast gegn sjálfum Guði.“
만일 하나님께로서 났으면 너희가 저희를 무너뜨릴 수 없겠고 도리어 하나님을 대적하는 자가 될까 하노라' 하니
40 Ráðið samþykkti þetta, kallaði postulana fyrir sig, lét húðstrýkja þá og bannaði þeim harðlega að tala í Jesú nafni. Síðan var þeim sleppt.
저희가 옳게 여겨 사도들을 불러들여 채찍질하며 예수의 이름으로 말하는 것을 금하고 놓으니
41 Postularnir yfirgáfu ráðið og lofuðu Guð fyrir að hann skyldi álíta þá verða þess að þola smán hans vegna.
사도들은 그 이름을 위하여 능욕 받는 일에 합당한 자로 여기심을 기뻐하면서 공회 앞을 떠나니라
42 Og þeir komu daglega saman í musterinu, höfðu Biblíulestra í heimahúsum og boðuðu að Jesús væri Kristur.
저희가 날마다 성전에 있든지 집에 있든지 예수는 그리스도라 가르치기와 전도하기를 쉬지 아니하니라

< Postulasagan 5 >