< Revelation 18 >

1 After these things, I saw another angel coming down out of the sky, having great authority. The earth was illuminated with his glory.
Eftir þetta sá ég annan engil koma niður af himni. Hann hafði mikið vald og dýrð hans varpaði ljóma á jörðina.
2 He cried with a mighty voice, saying, “Fallen, fallen is Babylon the great, and she has become a habitation of demons, a prison of every unclean spirit, and a prison of every unclean and hated bird!
Hann kallaði hárri röddu: „Babýlon hin mikla er fallin, hún er fallin! Hún er orðin bæli illra anda, samastaður djöfla og alls þess sem illt er.
3 For all the nations have drunk of the wine of the wrath of her sexual immorality, the kings of the earth committed sexual immorality with her, and the merchants of the earth grew rich from the abundance of her luxury.”
Ástæðan er sú að hún gaf öllum þjóðum að drekka sitt hræðilega saurlifnaðarvín. Konungar jarðarinnar nutu blíðu hennar og kaupsýslumenn um allan heim græddu á eyðslusemi hennar.“
4 I heard another voice from heaven, saying, “Come out of her, my people, that you have no participation in her sins, and that you don’t receive of her plagues,
Nú heyrði ég aðra rödd kalla frá himni: „Gangið út úr henni, fólk mitt, og takið ekki þátt í syndum hennar, annars mun ykkur verða refsað ásamt henni.
5 for her sins have reached to the sky, and God has remembered her iniquities.
Syndir hennar hafa hlaðist upp allt til himins og Guð er reiðubúinn að dæma hana fyrir glæpi hennar.
6 Return to her just as she returned, and repay her double as she did, and according to her works. In the cup which she mixed, mix to her double.
Gjaldið henni í sömu mynt og hún galt ykkur, jafnvel enn ríkulegar – gjaldið henni tvöfalt fyrir öll ódæðisverk hennar. Hún leiddi bölvun yfir marga, gefið henni því tvöfaldan skammt.
7 However much she glorified herself and grew wanton, so much give her of torment and mourning. For she says in her heart, ‘I sit a queen, and am no widow, and will in no way see mourning.’
Hún var hrokafull og lifði í munaði, mælið henni nú sem því nemur af kvölum og sorg. Hún sagði í hroka sínum: „Ég er drottningin. Ég sit í hásætinu. Ég er ekki vesæl ekkja – nei, ógæfan forðast mig!“
8 Therefore in one day her plagues will come: death, mourning, and famine; and she will be utterly burned with fire, for the Lord God who has judged her is strong.
Vegna þessara orða munu sorg og dauði koma yfir hana á sama degi og hún mun eyðast í eldi. Vald Drottins er mikið og hann er dómari hennar.“
9 The kings of the earth who committed sexual immorality and lived wantonly with her will weep and wail over her, when they look at the smoke of her burning,
Leiðtogar heimsins, sem þátt tóku í siðleysi hennar og nutu blíðu hennar, munu fyllast angist þegar þeir sjá hana brenna og reykinn stíga upp af ösku hennar.
10 standing far away for the fear of her torment, saying, ‘Woe, woe, the great city, Babylon, the strong city! For your judgment has come in one hour.’
Þeir munu standa langt frá, skjálfandi af ótta og hrópa: „Æ, þú Babýlon, borgin mikla! Dómur þinn kom eins og þruma úr heiðskíru lofti.“
11 The merchants of the earth weep and mourn over her, for no one buys their merchandise any more:
Kaupmenn jarðarinnar gráta og kveina yfir henni, því nú finnst enginn til að kaupa vörur þeirra framar.
12 merchandise of gold, silver, precious stones, pearls, fine linen, purple, silk, scarlet, all expensive wood, every vessel of ivory, every vessel made of most precious wood, and of brass, and iron, and marble;
Hún var þeirra besti viðskiptavinur. Hún keypti af þeim gull, silfur, gimsteina, perlur, dýran vefnað, purpura, silki og skarlat og alls konar ilmvið, fílabein og dýrmætan útskorinn við, eir, járn og marmara.
13 and cinnamon, incense, perfume, frankincense, wine, olive oil, fine flour, wheat, cattle, sheep, horses, chariots, and people’s bodies and souls.
Þeir seldu henni einnig krydd, ilmefni og reykelsi, smyrsl, vín, olífuolíu, fínmalað korn, hveiti, nautgripi, sauðfé, hesta, vagna og þræla – jafnvel mannssálir.
14 The fruits which your soul lusted after have been lost to you. All things that were dainty and sumptuous have perished from you, and you will find them no more at all.
„Nú er allt þetta góss, sem þú sóttist eftir, orðið að engu!“hrópa þeir. „Framvegis munt þú ekki augum líta allan þennan dýrindismunað og allt þetta skraut sem þú sóttist eftir, því að það er farið veg allrar veraldar.“
15 The merchants of these things, who were made rich by her, will stand far away for the fear of her torment, weeping and mourning,
Kaupmennirnir, sem auðguðust af viðskiptum sínum við hana, munu standa langt frá, skelfingu lostnir, því að þeir óttast afkomu sína í framtíðinni. Þeir munu gráta og kveina og segja:
16 saying, ‘Woe, woe, the great city, she who was dressed in fine linen, purple, and scarlet, and decked with gold and precious stones and pearls!
„Æ, æ, borgin mikla. Þú varst eins og fögur kona sem klæddist dýrum purpura og skarlatslitu líni, hlaðin skartgripum úr gulli, gimsteinum og dýrum perlum.
17 For in an hour such great riches are made desolate.’ Every ship master, and everyone who sails anywhere, and mariners, and as many as gain their living by sea, stood far away,
Á einni svipstundu urðu öll þín miklu auðæfi að engu!“Eigendur kaupskipa, skipstjórar þeirra og áhafnir, munu horfa úr fjarlægð á reykinn stíga til himins
18 and cried out as they looked at the smoke of her burning, saying, ‘What is like the great city?’
og segja með grátstafinn í kverkunum: „Engin borg í öllum heiminum jafnaðist á við þessa!“
19 They cast dust on their heads, and cried, weeping and mourning, saying, ‘Woe, woe, the great city, in which all who had their ships in the sea were made rich by reason of her great wealth!’ For she is made desolate in one hour.
Þeir munu kveina hátt, viti sínu fjær af sorg og segja: „Hvílík ógæfa kom yfir þessa miklu borg! Það voru auðæfi hennar sem gerðu okkur ríka, en nú er allt orðið að engu á einu augabragði.“
20 “Rejoice over her, O heaven, you saints, apostles, and prophets, for God has judged your judgment on her.”
En þú, himinn, þú skalt fagna örlögum hennar og sömuleiðis þið, börn Guðs, spámenn og postular. Guð hefur leitað réttar ykkar gegn henni.
21 A mighty angel took up a stone like a great millstone and cast it into the sea, saying, “Thus with violence will Babylon, the great city, be thrown down, and will be found no more at all.
Þá tók voldugur engill upp stóran stein, líkan kvarnarsteini, fleygði honum í hafið og hrópaði: „Babýlon, borgin mikla, henni mun verða fleygt burt eins og ég fleygði þessum steini. Hún mun hverfa svo að hvorki sjáist tangur né tetur af henni upp frá því.
22 The voice of harpists, minstrels, flute players, and trumpeters will be heard no more at all in you. No craftsman of whatever craft will be found any more at all in you. The sound of a mill will be heard no more at all in you.
Framvegis mun engin tónlist heyrast í henni, hvorki hörpusláttur né lúðurhljómur. Enginn iðnaður mun þrífast þar framar og ekkert korn verður malað.
23 The light of a lamp will shine no more at all in you. The voice of the bridegroom and of the bride will be heard no more at all in you, for your merchants were the princes of the earth; for with your sorcery all the nations were deceived.
Nætur hennar verða dimmar, niðdimmar, og þar mun aldrei framar sjást ljós í glugga. Þar verða engar klingjandi brúðkaupsbjöllur né glaðværar raddir brúðar og brúðguma. Kaupmenn hennar voru heimskunnir og hún leiddi þjóðirnar afvega með kukli sínu og göldrum.
24 In her was found the blood of prophets and of saints, and of all who have been slain on the earth.”
Hún bar ábyrgð á dauða spámanna og margra helgra manna.“

< Revelation 18 >