< Hebrews 1 >

1 God, having in the past spoken to the fathers through the prophets at many times and in various ways,
Fyrr á tímum talaði Guð með ýmsu móti til forfeðra okkar fyrir milligöngu spámannanna (til dæmis í sýnum, draumum eða jafnvel augliti til auglitis) og sagði þeim þannig smátt og smátt frá fyrirætlunum sínum.
2 has at the end of these days spoken to us by his Son, whom he appointed heir of all things, through whom also he made the worlds. (aiōn g165)
Á okkar dögum hefur hann hins vegar talað til okkar með tungu sonar síns, sem hann hefur gefið alla hluti. Sonarins vegna skapaði hann heiminn og allt sem í honum er. (aiōn g165)
3 His Son is the radiance of his glory, the very image of his substance, and upholding all things by the word of his power, who, when he had by himself purified us of our sins, sat down on the right hand of the Majesty on high,
Sonur Guðs endurspeglar dýrð Guðs og allt, sem sonurinn er og gerir, ber þess vitni að hann er Guð. Hann ríkir yfir alheimi með orðum sínum. Hann er sá sem dó til að hreinsa okkur og sýkna af ákæru syndarinnar og settist síðan í hið æðsta heiðurssæti við hlið Guðs almáttugs á himnum.
4 having become as much better than the angels as the more excellent name he has inherited is better than theirs.
Þannig varð hann englunum mun æðri og það sannar líka nafnið sem faðir hans gaf honum: „Sonur Guðs“, en það nafn er langtum æðra en nöfn og titlar englanna.
5 For to which of the angels did he say at any time, “You are my Son. Today I have become your father?” and again, “I will be to him a Father, and he will be to me a Son?”
Guð hefur aldrei sagt svo við neinn af englum sínum: „Þú ert sonur minn og í dag gef ég þér heiður þann og tign sem fylgir nafni mínu.“Þetta sagði hann hins vegar við Jesú og öðru sinni sagði hann: „Ég er faðir hans; hann er sonur minn.“Þegar Guðs eingetni sonur kom til jarðarinnar sagði hann enn fremur: „Allir englar Guðs skulu tilbiðja hann.“
6 When he again brings in the firstborn into the world he says, “Let all the angels of God worship him.”
7 Of the angels he says, “He makes his angels winds, and his servants a flame of fire.”
Um engla sína segir Guð, að þeir séu sendiboðar, skjótir sem vindurinn og líkir eldslogum,
8 But of the Son he says, “Your throne, O God, is forever and ever. The scepter of uprightness is the scepter of your Kingdom. (aiōn g165)
en um son sinn segir hann: „Ríki þitt, ó Guð, mun standa að eilífu og tilskipanir þínar eru góðar og réttlátar. (aiōn g165)
9 You have loved righteousness and hated iniquity; therefore God, your God, has anointed you with the oil of gladness above your fellows.”
Guð, þú elskar réttlætið en hatar ranglætið, þess vegna hefur Guð þinn veitt þér meiri gleði en nokkrum öðrum.“
10 And, “You, Lord, in the beginning, laid the foundation of the earth. The heavens are the works of your hands.
Guð kallaði hann einnig „Drottin“og sagði: „Drottinn, í upphafi skapaðir þú jörðina og himnarnir eru verk handa þinna.
11 They will perish, but you continue. They all will grow old like a garment does.
Þeir munu leysast upp og hverfa, en þú verður áfram. Þeir munu slitna eins og gömul flík,
12 You will roll them up like a mantle, and they will be changed; but you are the same. Your years won’t fail.”
sem þú dag einn leggur frá þér og færð þér nýja. Sjálfur munt þú aldrei breytast og ævi þín engan endi taka.“
13 But which of the angels has he told at any time, “Sit at my right hand, until I make your enemies the footstool of your feet?”
Hefur Guð nokkurn tíma sagt slíkt við engil, sem hann segir við son sinn: „Sittu hér í heiðurssætinu við hlið mér, þar til ég hef lagt alla óvini þína að fótum þér“?
14 Aren’t they all serving spirits, sent out to do service for the sake of those who will inherit salvation?
Nei, því englarnir eru aðeins andlegir sendiboðar Guðs, sendir til hjálpar og aðstoðar þeim, sem erfa eiga hjálpræði hans.

< Hebrews 1 >