Aionian Verses

Psalms 6:5 (Sálmarnir 6:5)
(parallel missing)
Því að ef ég dey, þá get ég ekki lengur lofað þig meðal vina minna. (Sheol h7585)
Psalms 9:17 (Sálmarnir 9:17)
(parallel missing)
Illmennin munu hrapa til heljar og eins verða örlög þeirra þjóða sem gleyma Drottni. (Sheol h7585)
Psalms 16:10 (Sálmarnir 16:10)
(parallel missing)
því að þú munt ekki skilja mig eftir meðal hinna dánu né leyfa að þinn elskaði rotni í gröfinni. (Sheol h7585)
Psalms 18:5 (Sálmarnir 18:5)
(parallel missing)
Umkringdur og hjálparvana barðist ég um í netinu sem dró mig niður í djúp dauðans. (Sheol h7585)
Psalms 30:3 (Sálmarnir 30:3)
(parallel missing)
Þú hreifst mig burt frá barmi grafarinnar, já úr dauðans greipum, og gafst mér líf og framtíð! (Sheol h7585)
Psalms 31:17 (Sálmarnir 31:17)
(parallel missing)
Drottinn, láttu mig ekki verða til skammar þegar ég ákalla þig um hjálp. Láttu illmennin blygðast sín fyrir það sem þau treysta á. Já, sendu þá sneypta og þegjandi í gröfina (Sheol h7585)
Psalms 49:14 (Sálmarnir 49:14)
(parallel missing)
En þeir fá ekki umflúið dauðann. Þegar upp er staðið verða hinir vondu að þjóna hinum góðu. Vald auðsins er þeim gagnslaust í dauðanum og ekki taka þeir auðæfi sín með sér. (Sheol h7585)
Psalms 49:15 (Sálmarnir 49:15)
(parallel missing)
En hvað um mig? Guð mun leysa sál mína frá dauða og frelsa mig úr helju. (Sheol h7585)
Psalms 55:15 (Sálmarnir 55:15)
(parallel missing)
Dauðinn taki þá og dragi þá til heljar, því að illska er í húsum þeirra, synd í hjörtum þeirra. (Sheol h7585)
Psalms 86:13 (Sálmarnir 86:13)
(parallel missing)
Mikill er kærleikur þinn! Þú ert mér alltaf svo góður! Þú frelsaðir mig úr djúpi heljar. (Sheol h7585)
Psalms 88:3 (Sálmarnir 88:3)
(parallel missing)
því að ég er altekinn ótta og finn dauðann nálgast. (Sheol h7585)
Psalms 89:48 (Sálmarnir 89:48)
(parallel missing)
Enginn maður lifir endalaust. Öll deyjum við að lokum. Og hver getur stigið upp úr gröf sinni? (Sheol h7585)
Psalms 116:3 (Sálmarnir 116:3)
(parallel missing)
Ég horfðist í augu við dauðann – var hræddur og hnípinn. (Sheol h7585)
Psalms 139:8 (Sálmarnir 139:8)
(parallel missing)
Fari ég til himna, þá ertu þar, til dánarheima, þá ertu líka þar! (Sheol h7585)
Psalms 141:7 (Sálmarnir 141:7)
(parallel missing)
þá munu menn þessir hlusta á viðvörun mína og skilja að ég vildi þeim vel. (Sheol h7585)
Matthew 5:22 (Matteus 5:22)
(parallel missing)
En ég bæti við: Ef þú reiðist – jafnvel þótt það sé aðeins við bróður þinn á þínu eigin heimili – vofir dómurinn yfir þér! Ef þú kallar vin þinn fífl, átt þú á hættu að þér verði stefnt fyrir réttinn! Og bölvir þú honum áttu eld helvítis yfir höfði þér. (Geenna g1067)
Matthew 5:29 (Matteus 5:29)
(parallel missing)
Ef það sem þú sérð með auga þínu verður til þess að þú fellur í synd, skaltu stinga augað úr þér og fleygja því. Betra er að hluti af þér eyðileggist en að þér verði öllum kastað í víti. (Geenna g1067)
Matthew 5:30 (Matteus 5:30)
(parallel missing)
Ef hönd þín – jafnvel sú hægri – kemur þér til að syndga, þá er betra að höggva hana af og fleygja henni en að lenda í helvíti. (Geenna g1067)
Matthew 10:28 (Matteus 10:28)
(parallel missing)
Óttist ekki þá sem aðeins geta deytt líkama ykkar, en megna ekki að skaða sálina. Óttist Guð, því að hann getur tortímt sál og líkama í helvíti. (Geenna g1067)
Matthew 11:23 (Matteus 11:23)
(parallel missing)
Kapernaum, þér hlotnaðist mikill heiður, en þér verður eytt! Ef öll kraftaverkin, sem ég hef gert í þér, hefðu gerst í Sódómu, stæði hún enn í dag. (Hadēs g86)
Matthew 12:32 (Matteus 12:32)
(parallel missing)
hvorki í þessum heimi né hinum komandi. (aiōn g165)
Matthew 13:22 (Matteus 13:22)
(parallel missing)
Jarðvegurinn þar sem þyrnarnir uxu, táknar mann sem heyrir boðskapinn, en lætur áhyggjur lífsgæðakapphlaupsins kæfa orð Guðs, og fjarlægist Guð smátt og smátt. (aiōn g165)
Matthew 13:39 (Matteus 13:39)
(parallel missing)
Óvinurinn, sem sáði illgresinu meðal hveitisins, er Satan. Uppskerutíminn er dómsdagur. Kornskurðarmennirnir eru englar. (aiōn g165)
Matthew 13:40 (Matteus 13:40)
(parallel missing)
Eins og illgresi er brennt, eins mun fara við endi veraldar. (aiōn g165)
Matthew 13:49 (Matteus 13:49)
(parallel missing)
Þannig fer líka á dómsdegi. Englar munu koma, skilja hina óguðlegu frá hinum trúuðu og (aiōn g165)
Matthew 16:18 (Matteus 16:18)
(parallel missing)
Þú ert Pétur – kletturinn – á þessum kletti mun ég byggja söfnuð minn og vald vítis mun ekki megna að yfirbuga hann. (Hadēs g86)
Matthew 18:8 (Matteus 18:8)
(parallel missing)
Ef hönd þín eða fótur kemur þér til að syndga, er betra að skera liminn af, kasta honum burt og koma bæklaður til himins, en hafa bæði hendur og fætur, og lenda í helvíti. (aiōnios g166)
Matthew 18:9 (Matteus 18:9)
(parallel missing)
Ef auga þitt fær þig til að syndga, skaltu stinga það úr og fleygja því. Betra er fyrir þig að ná til himna eineygður, en að fara alsjáandi til helvítis. (Geenna g1067)
Matthew 19:16 (Matteus 19:16)
(parallel missing)
Maður nokkur kom til Jesú og spurði: „Meistari, hvaða góðverk þarf ég að gera til þess að eignast eilíft líf?“ (aiōnios g166)
Matthew 19:29 (Matteus 19:29)
(parallel missing)
Hver sá sem yfirgefur heimili, bræður, systur, föður, móður, eiginkonu, börn eða eignir til að geta fylgt mér, mun fá hundraðfalt í staðinn og eignast eilíft líf. (aiōnios g166)
Matthew 21:19 (Matteus 21:19)
(parallel missing)
Þá tók hann eftir fíkjutré, sem stóð rétt við veginn. Hann gekk að trénu til að athuga hvort á því væru nokkrar fíkjur, en svo var ekki, einungis lauf. Þá sagði hann við tréð: „Upp frá þessu munt þú aldrei bera ávöxt!“Rétt á eftir visnaði tréð. (aiōn g165)
Matthew 23:15 (Matteus 23:15)
(parallel missing)
Já, vei ykkur, þið hræsnarar! Þið farið langar leiðir til þess að vinna einn trúskipting, og gerið hann síðan að miklu verra helvítisbarni en þið eruð sjálfir. (Geenna g1067)
Matthew 23:33 (Matteus 23:33)
(parallel missing)
Eiturnöðrur og höggormssynir! Hvernig fáið þið umflúið dóm helvítis? (Geenna g1067)
Matthew 24:3 (Matteus 24:3)
(parallel missing)
Stuttu seinna þegar Jesús sat í hlíð Olíufjallsins gengu lærisveinarnir til hans og spurðu hann um þetta: „Hvenær verður það og hvaða atburðir verða á undan endurkomu þinni og endi veraldar?“ (aiōn g165)
Matthew 25:41 (Matteus 25:41)
(parallel missing)
Síðan mun ég snúa mér að þeim sem eru til vinstri og segja: „Burt með ykkur, bölvaðir, í eilífa eldinn sem ætlaður er djöflinum og þjónum hans. (aiōnios g166)
Matthew 25:46 (Matteus 25:46)
(parallel missing)
Og þeir munu fara burt til eilífrar refsingar, en hinir réttlátu til eilífs lífs.“ (aiōnios g166)
Matthew 28:20 (Matteus 28:20)
(parallel missing)
Skírið þá í nafni föður, sonar og heilags anda, og kennið þeim að halda allt það sem ég hef boðið ykkur. Takið eftir! Ég er með ykkur alla daga allt til enda veraldarinnar.“ (aiōn g165)
Mark 3:29 (Markús 3:29)
(parallel missing)
en last gegn heilögum anda verður aldrei fyrirgefið. Það er eilíf synd.“ (aiōn g165, aiōnios g166)
Mark 4:19 (Markús 4:19)
(parallel missing)
En fyrr en varir hefur athygli þeirra beinst að því sem heimurinn hefur að bjóða og að táli auðæfanna. Löngun í metorð og alls kyns gæði gagntekur hug þeirra, svo þar verður ekkert rúm fyrir orð Guðs. Afleiðingin verður sú að fræið ber engan þroskaðan ávöxt. (aiōn g165)
Mark 9:43 (Markús 9:43)
(parallel missing)
Ef hönd þín gerir rangt, þá er betra að skera hana af og hafa aðeins aðra höndina og eignast eilíft líf, en hafa báðar og vera varpað í helvíti. (Geenna g1067)
Mark 9:45 (Markús 9:45)
(parallel missing)
Ef fótur þinn leiðir þig á veg illskunnar, höggðu hann þá af! Betra er að vera einfættur og eignast eilíft líf, en ganga á báðum fótum til helvítis. (Geenna g1067)
Mark 9:47 (Markús 9:47)
(parallel missing)
Ef auga þitt teymir þig út í syndina, stingdu það þá úr! Betra er að ganga hálfblindur inn í guðsríki, en hafa bæði augun og líta elda helvítis. (Geenna g1067)
Mark 10:17 (Markús 10:17)
(parallel missing)
Jesús var í þann veginn að leggja upp í ferð, þegar maður nokkur kom hlaupandi til hans, kraup og spurði. „Góði meistari, hvað verð ég að gera til að eignast eilíft líf?“ (aiōnios g166)
Mark 10:30 (Markús 10:30)
(parallel missing)
Honum verður launað hundraðfalt! Heimili, bræður, systur, mæður, börn og land – og ofsóknir. Allt þetta mun hann fá á jörðu og auk þess eilíft líf í hinum komandi heimi. (aiōn g165, aiōnios g166)
Mark 11:14 (Markús 11:14)
(parallel missing)
Þá sagði Jesús við tréð, svo lærisveinarnir heyrðu: „Aldrei framar munt þú ávöxt bera!“ (aiōn g165)
y sinará Crallis deltó andré o quer de Jacob. Y desquero chim na terelará anda. (aiōn g165)
og hann mun ríkja yfir Ísrael að eilífu. Á ríki hans mun enginn endir verða!“ (aiōn g165)
Andiar sasta penó á amáres batuces, á Abraham y á sus chaborés deltó. (aiōn g165)
Hann lofaði feðrum okkar – Abraham og afkomendum hans – að sýna þeim miskunn að eilífu.“ (aiōn g165)
Como penó por mui de sus majarés Prophetas, andré os sarés gresés. (aiōn g165)
eins og hinir heilögu spámenn höfðu sagt fyrir, (aiōn g165)
Y le manguelaban, que na os bichabase al butron. (Abyssos g12)
Síðan báðu illu andarnir hann að senda sig ekki í botnlausa hyldýpið. (Abyssos g12)
Y tucue, Capharnaúm, ardiñado disde o Charos, disde o butrón sinarás chibado ostely. (Hadēs g86)
Og hvað um ykkur, íbúar Kapernaum? Verðið þið hafnir til himins? Nei, ykkur verður varpað niður til heljar.“ (Hadēs g86)
Y se ardiñó yeque Chande de la Eschastra, y le penó somia pesquilarle: ¿Duquendio, que quereláre somia terelar chipen deltó? (aiōnios g166)
Dag nokkurn kom fræðimaður í lögum Móse til Jesú og vildi prófa rétttrúnað hans. „Meistari, “sagði hann, „hvað þarf maður að gera til að eignast eilíft líf?“ (aiōnios g166)
Tami menda penaré sangue á coin jomte terelar dal: Terelad dal á ocola, sos despues de nicobar a chipen, terela ezor de bucharar al butron: andiar sangue penelo, a ocona terelad dal. (Geenna g1067)
Ég skal segja ykkur hvern þið eigið að óttast – það er Guð. Hann hefur vald til að taka líf ykkar og kasta ykkur í helvíti. (Geenna g1067)
Y loó ó erañó al queresquero choro, presas queró saro cuerdamente: presas os chai de ocona gré chanelan butér andré su beda, que os chai e dut. (aiōn g165)
Ríki maðurinn var tilneyddur að dást að þorpara þessum fyrir slægð hans. Satt er það, að guðleysingjarnir eru kænni í viðskiptum sínum við heiminn en hinir trúuðu. (aiōn g165)
Menda sangue penelo: Que quereleis monres es manchines e choripen; somia que pur perareis, ustilelen sangue andré eternos querés. (aiōnios g166)
En ég segi ykkur: Notið eigur ykkar til þess að afla ykkur vina, svo að þeir fagni ykkur í eilífðinni, þegar þið verðið að skiljast við þær. (aiōnios g166)
Y ardiñelando as aquias, pur sinaba andré os jacháres, diqueló de muy dur á Abraham, y á Lazaro andré desquero chepo: (Hadēs g86)
og fór til heljar. En er hann kvaldist þar, sá hann Lasarus álengdar hjá Abraham. (Hadēs g86)
Y le puchabó yeque tintin baro, penando: Duquendio lacho, ¿qué querelaré somia alachar a chipen que na marela? (aiōnios g166)
Höfðingi nokkur spurði Jesú: „Góði meistari, hvað á ég að gera til að eignast eilíft líf?“ (aiōnios g166)
Sos na terele de alachar baribu butér andré ocona chiros; y andré o chim que abillele a chipen que na marela. (aiōn g165, aiōnios g166)
munu fá margföld laun í þessum heimi, auk eilífs lífs í hinum komandi.“ (aiōn g165, aiōnios g166)
Y Jesus les penó: Os chabores de ocona sueti se romandiñelan, y sinelan diñados en romandiñipen: (aiōn g165)
„Hjónabandið er fyrir þá sem lifa á jörðinni, “svaraði Jesús, (aiōn g165)
Tami junos sos sinarán juzgados cabalicos de ocola sueti, y e resurreccion es mulés, na se romandiñarán, ni sinarán diñados en romandiñipen. (aiōn g165)
„en þeir sem verðskulda guðsríki ganga ekki í hjónaband við upprisuna, (aiōn g165)
John 3:16 (Jóhannes 3:16)
(parallel missing)
Því að svo elskaði Guð heiminn að hann gaf einkason sinn til þess að hver sem trúir á hann glatist ekki, heldur eignist eilíft líf. (aiōnios g166)
John 3:36 (Jóhannes 3:36)
(parallel missing)
Allir sem treysta honum – Guðssyninum – eignast eilíft líf, en þeir sem hvorki trúa honum né hlýða, munu aldrei sjá guðsríki heldur mun reiði Guðs hvíla yfir þeim.“ (aiōnios g166)
John 4:14 (Jóhannes 4:14)
(parallel missing)
„En, “bætti hann við, „vatnið sem ég gef, verður að lind hið innra með þeim og veitir eilífa svölun.“ (aiōn g165, aiōnios g166)
John 4:36 (Jóhannes 4:36)
(parallel missing)
Sá sem uppsker fær laun og safnar ávöxtum til eilífs lífs, til þess að bæði sá sem sáir og sá sem uppsker geti glaðst saman. (aiōnios g166)
John 5:24 (Jóhannes 5:24)
(parallel missing)
Ég segi ykkur satt og legg á það áherslu, að hver sem heyrir orð mín og trúir Guði, sem sendi mig, eignast eilíft líf og mun aldrei hljóta dóm fyrir syndir sínar, heldur hefur hann þá þegar stigið yfir frá dauðanum til lífsins. (aiōnios g166)
John 5:39 (Jóhannes 5:39)
(parallel missing)
Þið rannsakið Gamla testamentið, því að þið álítið að það gefi ykkur eilíft líf, en svo vitið þið ekki að það vitnar um mig! (aiōnios g166)
John 6:27 (Jóhannes 6:27)
(parallel missing)
Hugsið ekki um það sem eyðist, eins og til dæmis mat. Leitið heldur eilífa lífsins sem ég, Kristur, get gefið ykkur, og einmitt þess vegna sendi Guð mig hingað.“ (aiōnios g166)
John 6:40 (Jóhannes 6:40)
(parallel missing)
Það er vilji föður míns að allir sem sjá soninn og trúa á hann, eignist eilíft líf og að ég reisi þá upp á efsta degi.“ (aiōnios g166)
John 6:47 (Jóhannes 6:47)
(parallel missing)
Ég segi ykkur satt: „Hver sem trúir á mig, mun þegar í stað eignast eilíft líf!“ (aiōnios g166)
John 6:51 (Jóhannes 6:51)
(parallel missing)
Ég er þetta lifandi brauð, sem kom niður af himni, og sá sem neytir þess mun lifa að eilífu. Þetta brauð er ég sjálfur – hold mitt sem gefið er heiminum til lífs.“ (aiōn g165)
John 6:54 (Jóhannes 6:54)
(parallel missing)
Sá sem etur hold mitt og drekkur blóð mitt hefur eilíft líf, og ég mun vekja hann upp á efsta degi. (aiōnios g166)
John 6:58 (Jóhannes 6:58)
(parallel missing)
Ég er hið sanna brauð sem kom niður af himni og hver sem etur þetta brauð, mun lifa að eilífu en ekki deyja eins og forfeður ykkar, sem átu brauð frá himni.“ (aiōn g165)
John 6:68 (Jóhannes 6:68)
(parallel missing)
Símon varð fyrir svörum: „Meistari, hvert ættum við að fara? Þú ert sá eini sem hefur orð eilífs lífs, (aiōnios g166)
John 8:35 (Jóhannes 8:35)
(parallel missing)
„Þrælar hafa engin réttindi, en sonurinn hefur öll réttindi. (aiōn g165)
John 8:51 (Jóhannes 8:51)
(parallel missing)
Ég segi ykkur satt: Sá sem hlýðir orðum mínum, mun aldrei að eilífu sjá dauðann.“ (aiōn g165)
John 8:52 (Jóhannes 8:52)
(parallel missing)
„Nú vitum við að þú hefur illan anda, “sögðu leiðtogarnir, „því að Abraham dó og sama er að segja um spámennina, en nú segir þú að sá sem hlýði þér, muni aldrei deyja! (aiōn g165)
John 9:32 (Jóhannes 9:32)
(parallel missing)
Frá því heimurinn varð til hefur enginn maður getað opnað augu blindra, (aiōn g165)
John 10:28 (Jóhannes 10:28)
(parallel missing)
Ég gef þeim eilíft líf og þeir munu aldrei að eilífu glatast. Enginn skal slíta þá úr hendi minni, (aiōn g165, aiōnios g166)
John 11:26 (Jóhannes 11:26)
(parallel missing)
Og sá sem eignast lífið í trúnni á mig, mun aldrei að eilífu deyja. Marta, trúir þú þessu?“ (aiōn g165)
John 12:25 (Jóhannes 12:25)
(parallel missing)
Ef þið elskið líf ykkar hér á jörðinni, þá tapið þið því, en ef þið fórnið því, þá eignist þið eilífa dýrð í staðinn. (aiōnios g166)
John 12:34 (Jóhannes 12:34)
(parallel missing)
„Býstu við dauða þínum?“spurði fólkið. „Okkur skilst að Kristur eigi að lifa að eilífu og að hann muni aldrei deyja. Af hverju segirðu að hann muni deyja? Um hvaða Krist ertu að tala?“ (aiōn g165)
John 12:50 (Jóhannes 12:50)
(parallel missing)
Ég veit að orð hans gefa eilíft líf og þess vegna hef ég sagt allt það sem hann bauð mér að segja.“ (aiōnios g166)
John 13:8 (Jóhannes 13:8)
(parallel missing)
„Nei, “mótmælti Pétur, „þú skalt aldrei fá að þvo fætur mína!“„Ef ég geri það ekki, getur þú ekki verið lærisveinn minn, “sagði Jesús. (aiōn g165)
John 14:16 (Jóhannes 14:16)
(parallel missing)
Ég mun biðja föðurinn og hann mun gefa ykkur annan hjálpara, sem aldrei yfirgefur ykkur. (aiōn g165)
John 17:2 (Jóhannes 17:2)
(parallel missing)
Þú hefur gefið honum vald yfir sérhverjum manni á þessari jörð. Öllum þeim, sem þú hefur gefið mér, hef ég gefið eilíft líf. (aiōnios g166)
John 17:3 (Jóhannes 17:3)
(parallel missing)
Eilíft líf er það að þekkja þig, hinn eina sanna Guð, og þann sem þú sendir, Jesú Krist. (aiōnios g166)
Acts 2:27 (Postulasagan 2:27)
(parallel missing)
því að hvorki munt þú skilja sál mína eftir meðal hinna dánu, né láta líkama sonar þíns rotna. (Hadēs g86)
Acts 2:31 (Postulasagan 2:31)
(parallel missing)
Davíð sá langt fram í tímann og sagði fyrir um upprisu Krists, að sál hans yrði ekki skilin eftir meðal hinna dánu og líkami hans myndi ekki heldur rotna. (Hadēs g86)
Acts 3:21 (Postulasagan 3:21)
(parallel missing)
Jesús verður að dveljast á himnum uns allt, sem syndin eyðilagði, hefur verið endurnýjað, eins og lofað var í upphafi. Móse sagði til dæmis fyrir löngu: „Drottinn Guð mun vekja upp spámann líkan mér á meðal ykkar. Hlustið með athygli á orð hans, (aiōn g165)
Acts 13:46 (Postulasagan 13:46)
(parallel missing)
Þá sögðu Páll og Barnabas ákveðnir: „Rétt var að þið Gyðingarnir fengjuð fyrst að heyra þennan fagnaðarboðskap, en fyrst þið hafnið honum og sýnið þar með að þið séuð ekki verðir eilífs lífs, þá munum við snúa okkur til heiðingjanna. (aiōnios g166)
Acts 13:48 (Postulasagan 13:48)
(parallel missing)
Þegar heiðingjarnir heyrðu þetta urðu þeir mjög glaðir og tóku fegins hendi við boðskap Páls. Allir þeir, sem vildu eignast eilíft líf, tóku trú, (aiōnios g166)
Acts 15:18 (Postulasagan 15:18)
(parallel missing)
Þetta eru orð Drottins, sem opinberar fyrirætlanir sínar, sem hann gerði í upphafi. (aiōn g165)
Romans 1:20 (Rómverjabréfið 1:20)
(parallel missing)
Mennirnir hafa frá upphafi virt fyrir sér jörðina, himininn og allt sem Guð hefur gert. Þeir hafa því verið sér meðvitandi um tilveru hans og hans mikla, eilífa mátt. Þess vegna hafa þeir enga afsökun (þegar þeir standa frammi fyrir honum á degi dómsins). (aïdios g126)
Romans 1:25 (Rómverjabréfið 1:25)
(parallel missing)
Í stað þess að trúa því sem þeir vita að er sannleikurinn um Guð, kjósa þeir að trúa lyginni! Afleiðingin er sú að þeir tilbiðja það sem Guð hefur skapað, í stað þess að tilbiðja Guð, skaparann. (aiōn g165)
Romans 2:7 (Rómverjabréfið 2:7)
(parallel missing)
Þeim sem af þrautseigju gera Guðs vilja, mun hann gefa eilíft líf, það er að segja þeim sem leita ósýnilegrar dýrðar, heiðurs og ódauðleika. (aiōnios g166)
Romans 5:21 (Rómverjabréfið 5:21)
(parallel missing)
Áður fyrr ríkti syndin í lífi allra manna og dró þá til dauða, en nú ríkir gæska Guðs og hún veitir okkur á ný samfélag við Guð og hlut í eilífa lífinu sem fæst fyrir Jesú Krist, Drottin okkar og frelsara. (aiōnios g166)
Romans 6:22 (Rómverjabréfið 6:22)
(parallel missing)
Nú eruð þið hins vegar laus undan valdi syndarinnar og hafið gerst þjónar Guðs. Hlunnindin, sem Guð veitir ykkur, eru meðal annars helgun og eilíft líf. (aiōnios g166)
Romans 6:23 (Rómverjabréfið 6:23)
(parallel missing)
Laun syndarinnar eru dauði, en óverðskulduð gjöf Guðs til okkar er eilíft líf í Kristi Jesú, Drottni okkar og frelsara. (aiōnios g166)
Romans 9:5 (Rómverjabréfið 9:5)
(parallel missing)
Forfeður þeirra voru miklar trúarhetjur og sjálfur var Kristur einn af þeim. Hann fæddist sem Gyðingur en nú er hann öllum æðri. Dýrð sé Guði um aldur og ævi! (aiōn g165)
Romans 10:7 (Rómverjabréfið 10:7)
(parallel missing)
„Þú þarft ekki að fara til hinna dauðu, til að leiða Krist aftur fram til lífsins, “ (Abyssos g12)
Romans 11:32 (Rómverjabréfið 11:32)
(parallel missing)
Guð hefur gefið þá alla syndinni á vald til að hann geti miskunnað þeim öllum. (eleēsē g1653)
Romans 11:36 (Rómverjabréfið 11:36)
(parallel missing)
Allt er komið frá Guði. Allt er orðið til fyrir mátt hans og allt skal verða honum til vegsemdar. Honum sé dýrð um alla eilífð! (aiōn g165)
Romans 12:2 (Rómverjabréfið 12:2)
(parallel missing)
Takið ekki framkomu og lífsvenjur heimsins ykkur til fyrirmyndar. Lifið sem nýir menn! Látið orð Guðs og anda hans móta hugarfar ykkar og alla framkomu ykkar, orð og verk. Ef þið gerið þetta, þá munuð þið fá að reyna og þekkja vilja Guðs sem er hið góða, fagra og fullkomna. (aiōn g165)
Romans 16:25 (Rómverjabréfið 16:25)
(parallel missing)
Ég fel ykkur Guði, honum sem megnar að styrkja ykkur og staðfesta í trúnni, eins og talað er um í gleðiboðskapnum sem ég flyt. Sá boðskapur er leiðin sem Guð hefur opnað öllum mönnum til hjálpræðis og sem öldum saman hefur legið í þagnargildi. (aiōnios g166)
Romans 16:26 (Rómverjabréfið 16:26)
(parallel missing)
En nú hefur það gerst samkvæmt skipun Guðs, eins og spámennirnir sögðu fyrir, að þessi boðskapur er fluttur meðal allra þjóða, svo að fólk um víða veröld trúi Kristi og hlýði honum. (aiōnios g166)
Romans 16:27 (Rómverjabréfið 16:27)
(parallel missing)
Guði, sem þekkir alla hluti, sé dýrð að eilífu fyrir Drottin Jesú Krist. Amen. (aiōn g165)
1-Corinthians 1:20 (1 Korintubréf 1:20)
(parallel missing)
Og hvað um þessa spekinga, þessa lærðu menn og snjöllu, sem vit hafa á öllu milli himins og jarðar? Guð hefur gert þá alla hlægilega og sýnt fram á að speki þeirra er tóm vitleysa. (aiōn g165)
1-Corinthians 2:6 (1 Korintubréf 2:6)
(parallel missing)
En þegar ég er meðal þroskaðra, kristinna manna þá nota ég vísdómsorð, þó ekki mannlegan vísdóm eða þann sem höfðar til stórmenna þessa heims, sem dæmd eru til að falla. (aiōn g165)
1-Corinthians 2:7 (1 Korintubréf 2:7)
(parallel missing)
Orð okkar eru skynsamleg af því að þau eru frá Guði og þau segja frá skynsamlegri fyrirætlun Guðs, um að leiða okkur inn í dýrð himinsins. Þessi fyrirætlun var hulin forðum daga enda þótt hún hafi verið gerð okkur til hjálpar og það áður en heimurinn varð til. (aiōn g165)
1-Corinthians 2:8 (1 Korintubréf 2:8)
(parallel missing)
En stórmenni þessa heims hafa ekki skilið hana, annars hefðu þeir ekki krossfest konung dýrðarinnar. (aiōn g165)
1-Corinthians 3:18 (1 Korintubréf 3:18)
(parallel missing)
Hættið að blekkja sjálf ykkur! Ef þið teljið ykkur vel greind, eftir mati þessa heims, leggið þá allt slíkt sjálfsmat á hilluna og teljið ykkur vankunnandi, annars missið þið af hinni sönnu visku frá Guði. (aiōn g165)
1-Corinthians 8:13 (1 Korintubréf 8:13)
(parallel missing)
Ef neysla kjöts, sem fórnað hefur verið skurðgoðum, leiðir trúbróður afvega, mun ég ekki neyta þess svo lengi sem ég lifi, til þess að ég valdi honum ekki slíku tjóni. (aiōn g165)
1-Corinthians 10:11 (1 Korintubréf 10:11)
(parallel missing)
Allt þetta henti þá, okkur til viðvörunar. Þessir atburðir voru færðir í letur til þess að við gætum lesið um þá og lært af þeim nú er endalok heimsins nálgast. (aiōn g165)
1-Corinthians 15:55 (1 Korintubréf 15:55)
(parallel missing)
Dauði, hvar er sigur þinn? Hvar er broddur þinn?“Syndin – broddurinn sem veldur dauða – verður þá orðin að engu og lögmálið, sem afhjúpar syndir okkar, mun ekki lengur dæma okkur. (Hadēs g86)
2-Corinthians 4:4 (2 Korintubréf 4:4)
(parallel missing)
Satan, – guð þessa heims, sem sneri baki við Drottni – hefur blindað þá og komið í veg fyrir að þeir sæju birtuna sem stafar af fagnaðarerindinu. Þeir skilja ekki heldur hinn stórkostlega boðskap sem við flytjum, boðskapinn um dýrð Krists, hann sem birtir okkur Guð. (aiōn g165)
2-Corinthians 4:17 (2 Korintubréf 4:17)
(parallel missing)
Erfiðleikar okkar eru smámunir einir, sem vara munu stuttan tíma. Þessir skammvinnu erfiðleikar leiða þó ríkulega blessun Guðs yfir líf okkar – blessun sem vara mun til eilífðar! (aiōnios g166)
2-Corinthians 4:18 (2 Korintubréf 4:18)
(parallel missing)
Þess vegna horfum við ekki á það sem við sjáum þessa stundina, erfiðleikana sem eru allt í kring um okkur, heldur fram til þeirrar gleði á himnum sem við munum sjá. Þrengingarnar eru skammvinnar en fögnuðurinn, sem í vændum er, mun aldrei taka enda. (aiōnios g166)
2-Corinthians 5:1 (2 Korintubréf 5:1)
(parallel missing)
Við vitum að þegar tjaldið sem við nú búum í – okkar jarðneski líkami – verður fellt, en það gerist þegar við deyjum, þá munum við fá nýja líkama á himnum – bústað sem endist okkur um alla eilífð. Sá bústaður verður ekki gerður af manna höndum, heldur af Guði sjálfum. (aiōnios g166)
2-Corinthians 9:9 (2 Korintubréf 9:9)
(parallel missing)
Um þetta segir Biblían: „Hinn guðrækni gefur fátækum með gleði. Góðverk hans munu verða honum til heiðurs í eilífðinni.“ (aiōn g165)
2-Corinthians 11:31 (2 Korintubréf 11:31)
(parallel missing)
Guð, faðir Drottins Jesú Krists, hann sem lofaður verður um aldir alda, veit að ég segi satt. (aiōn g165)
Galatians 1:4 (Galatabréfið 1:4)
(parallel missing)
Kristur dó fyrir syndir okkar eins og Guð faðir hafði ætlast til, og frelsaði okkur frá öllu því illa sem ræður ríkjum í þessum heimi. (aiōn g165)
Galatians 1:5 (Galatabréfið 1:5)
(parallel missing)
Dýrð sé Guði um aldir alda. Amen. (aiōn g165)
Galatians 6:8 (Galatabréfið 6:8)
(parallel missing)
Sá sem vill fullnægja sínum illu hvötum, sáir illgresi í hjarta sitt og uppsker andlega niðurlægingu og dauða. Ef hann hins vegar sáir hinu góða sæði Guðs anda, þá uppsker hann eilíft líf sem andinn gefur honum. (aiōnios g166)
Ephesians 1:21 (Efesusbréfið 1:21)
(parallel missing)
Vald hans er meira en nokkurs konungs, foringja, einræðisherra eða leiðtoga, hvort heldur þessa heims eða annars. (aiōn g165)
Ephesians 2:2 (Efesusbréfið 2:2)
(parallel missing)
Þið bárust með straumnum og voruð eins og allir aðrir, bundin af synd og hlýðni við hinn volduga Satan, hinn volduga, sem ríkir í andaheiminum og starfar í þeim sem ekki trúa á Drottin. (aiōn g165)
Ephesians 2:7 (Efesusbréfið 2:7)
(parallel missing)
Til þess að við gætum borið vitni um óendanlegan kærleika hans, sem birtist í öllu því sem hann hefur gert fyrir okkur. (aiōn g165)
Ephesians 3:9 (Efesusbréfið 3:9)
(parallel missing)
Mér var falið að útskýra fyrir öllum að Guð væri einnig frelsari heiðingjanna – kunngjöra áætlun hans frá örófi alda, hans, sem allt hefur skapað. (aiōn g165)
Ephesians 3:11 (Efesusbréfið 3:11)
(parallel missing)
einmitt eins og hann hugsaði sér í upphafi að hafa það í Jesú Kristi, Drottni okkar. (aiōn g165)
Ephesians 3:21 (Efesusbréfið 3:21)
(parallel missing)
Dýrð sú er hann birti heiminum í Kristi Jesú, verði augljós í söfnuði hans um alla framtíð, öld eftir öld. (aiōn g165)
Ephesians 6:12 (Efesusbréfið 6:12)
(parallel missing)
Barátta okkar er alls ekki gegn holdiklæddu fólki, heldur gegn ósýnilegum öflum eyðingar og upplausnar, hinum máttugu og illu myrkraöflum sem ríkja í þessum fallna heimi. Barátta okkar er einnig við mikinn fjölda illra anda í andaheiminum. (aiōn g165)
Philippians 4:20 (Filippíbréfið 4:20)
(parallel missing)
Guði föður sé dýrð um aldir alda. Amen. Páll P. S. (aiōn g165)
Colossians 1:26 (Kólossubréfið 1:26)
(parallel missing)
Aldir liðu, kynslóðir komu og fóru, og hann gætti leyndarmálsins; en nú hefur honum þóknast að segja það þeim sem elska hann og lifa fyrir hann. Þið voruð heiðingjar en hans dýrlega áætlun nær einnig til ykkar! Og þetta er leyndarmálið: Kristur, sem nú lifir í hjörtum ykkar, er ykkar eina von um eilíft líf. (aiōn g165)
2-Thessalonians 1:9 (2 Þessaloníkubréf 1:9)
(parallel missing)
Þeir munu glatast og þeim refsað með eilífum aðskilnaði frá Drottni. Þeir munu ekki sjá dýrð hans og mátt, (aiōnios g166)
2-Thessalonians 2:16 (2 Þessaloníkubréf 2:16)
(parallel missing)
Sjálfur Drottinn Jesús Kristur og Guð faðir okkar, sem hefur elskað okkur og gefið okkur eilífa huggun og óverðskuldaða von, (aiōnios g166)
1-Timothy 1:16 (1 Tímóteusarbréf 1:16)
(parallel missing)
En Guð miskunnaði mér til að Kristur Jesús skyldi sýna mér þolinmæði og langlyndi sitt, til vitnisburðar öðrum syndurum sem eignast trú á hann. (aiōnios g166)
1-Timothy 1:17 (1 Tímóteusarbréf 1:17)
(parallel missing)
Guði sé lof og dýrð um aldir alda! Hann er hinn ódauðlegi og ósýnilegi, konungur eilífðarinnar. Enginn er Guð nema hann. Amen. (aiōn g165)
1-Timothy 6:12 (1 Tímóteusarbréf 6:12)
(parallel missing)
Manstu hve djarfur þú varst þegar þú játaðir í margra votta viðurvist að þú hefðir eignast eilífa lífið? Haltu fast í það, því að það var Guð sem gaf þér það. (aiōnios g166)
1-Timothy 6:16 (1 Tímóteusarbréf 6:16)
(parallel missing)
hinn ódauðlega, sem býr í ljósi sem enginn fær nálgast. Enginn maður hefur nokkru sinni séð hann, né mun heldur sjá. Hans er mátturinn, dýrðin og valdið um aldir alda. Amen. (aiōnios g166)
1-Timothy 6:17 (1 Tímóteusarbréf 6:17)
(parallel missing)
Segðu þeim sem ríkir eru að forðast allan hroka og ekki treysta á peningana, því að þeir eyðast. Segðu þeim heldur að hrósa sér af Guði og setja traust sitt á hann, því að hann veitir okkur fúslega allt sem við þörfnumst. (aiōn g165)
2-Timothy 1:9 (2 Tímóteusarbréf 1:9)
(parallel missing)
Það var hann sem frelsaði okkur og útvaldi til að vinna sitt heilaga verk, ekki vegna þess að við ættum það skilið, heldur vegna eigin ákvörðunar, löngu áður en heimurinn varð til. Hann ætlaði að auðsýna okkur kærleika sinn og gæsku í Kristi. (aiōnios g166)
2-Timothy 2:10 (2 Tímóteusarbréf 2:10)
(parallel missing)
Ég er fús að þjást, ef það verður til þess að þeir, sem Guð hefur útvalið, öðlist hjálpræðið og dýrð Jesú Krists. (aiōnios g166)
2-Timothy 4:10 (2 Tímóteusarbréf 4:10)
(parallel missing)
því Demas er farinn frá mér. Hann elskaði lífsgæðin og fór til Þessaloníku. Kreskes er farinn til Galatíu og Títus til Dalmatíu. (aiōn g165)
2-Timothy 4:18 (2 Tímóteusarbréf 4:18)
(parallel missing)
Drottinn mun vernda mig gegn öllu illu og leiða mig inn í sitt himneska ríki. Guði sé dýrð um aldir alda. Amen. (aiōn g165)
Titus 1:2 (Títusarbréfið 1:2)
(parallel missing)
Sannleikur þessi vekur trú á Guð og leiðir til eilífs lífs. Þetta var óhagganleg fyrirætlun hans, áður en heimurinn varð til og það heit er enn í fullu gildi, því að Guð stendur við orð sín. (aiōnios g166)
Titus 2:12 (Títusarbréfið 2:12)
(parallel missing)
Þetta sýnir að Guð vill að við snúum okkur frá guðleysi og syndsamlegum nautnum, til góðs og guðrækilegs lífernis, (aiōn g165)
Titus 3:7 (Títusarbréfið 3:7)
(parallel missing)
Þetta gerði hann til að geta úrskurðað okkur hrein og syndlaus í augum Guðs og gert okkur að erfingjum eilífs lífs. (aiōnios g166)
Philemon 1:15 (Fílemonsbréfið 1:15)
(parallel missing)
Kannski getum við lýst því sem gerst hefur á þennan hátt: Hann strauk frá þér um stund, til þess síðan að geta verið hjá þér það sem eftir er. (aiōnios g166)
Hebrews 1:2 (Hebreabréfið 1:2)
(parallel missing)
Á okkar dögum hefur hann hins vegar talað til okkar með tungu sonar síns, sem hann hefur gefið alla hluti. Sonarins vegna skapaði hann heiminn og allt sem í honum er. (aiōn g165)
Hebrews 1:8 (Hebreabréfið 1:8)
(parallel missing)
en um son sinn segir hann: „Ríki þitt, ó Guð, mun standa að eilífu og tilskipanir þínar eru góðar og réttlátar. (aiōn g165)
Hebrews 5:6 (Hebreabréfið 5:6)
(parallel missing)
Í annað sinn sagði Guð við hann: „Þú ert kjörinn til að vera prestur að eilífu og fá sömu tign og Melkísedek.“ (aiōn g165)
Hebrews 5:9 (Hebreabréfið 5:9)
(parallel missing)
Og þegar Jesús hafði staðist próf hlýðninnar, varð hann öllum þeim, sem honum hlýða, gjafari eilífs hjálpræðis. (aiōnios g166)
Hebrews 6:2 (Hebreabréfið 6:2)
(parallel missing)
Og frekari fræðslu um skírn, handayfirlagningu, upprisu dauðra og eilífan dóm þurfið þið ekki. (aiōnios g166)
Hebrews 6:5 (Hebreabréfið 6:5)
(parallel missing)
reynt blessunina af orði Guðs og fundið mátt hins komandi heims, þá er þýðingarlaust að reyna að leiða ykkur aftur til Drottins. (aiōn g165)
Hebrews 6:20 (Hebreabréfið 6:20)
(parallel missing)
Þessa leið fór Kristur á undan okkur, til að biðja fyrir okkur sem æðsti prestur, líkur Melkísedek að mætti og dýrð. (aiōn g165)
Hebrews 7:17 (Hebreabréfið 7:17)
(parallel missing)
Þetta bendir sálmaskáldið á er hann segir um Krist: „Þú ert prestur að eilífu á borð við Melkísedek.“ (aiōn g165)
Hebrews 7:21 (Hebreabréfið 7:21)
(parallel missing)
en það hafði hann aldrei ætlað hinum prestunum. Þetta sagði hann við Krist, og aðeins hann: „Drottinn strengir þess heit og mun aldrei skipta um skoðun: Þú ert prestur að eilífu, að hætti Melkísedeks.“ (aiōn g165)
Hebrews 7:24 (Hebreabréfið 7:24)
(parallel missing)
En Jesús lifir að eilífu og heldur áfram að vera prestur, þar verða engin mannaskipti. (aiōn g165)
Hebrews 7:28 (Hebreabréfið 7:28)
(parallel missing)
Meðan hinn gamli siður var í gildi, voru æðstu prestarnir syndugir menn, veikleika háðir eins og hverjir aðrir, en seinna skipaði Guð son sinn með eiði og sonurinn er fullkominn að eilífu. (aiōn g165)
Hebrews 9:12 (Hebreabréfið 9:12)
(parallel missing)
Hann fór með blóð inn í hið allra helgasta, í eitt skipti fyrir öll, og stökkti því á náðarstólinn. Blóð þetta var ekki blóð úr geitum eða kálfum, heldur hans eigið blóð og með því tryggði hann okkur eilíft hjálpræði. (aiōnios g166)
Hebrews 9:14 (Hebreabréfið 9:14)
(parallel missing)
þá getið þið rétt ímyndað ykkur hvort blóð Krists muni ekki breyta hjörtum okkar og lífi! Fórn hans leysir okkur undan þeirri kvöð að þurfa að hlýða gömlu reglunum og kemur því jafnframt til leiðar að við þráum að þjóna lifandi Guði. Kristur lagði líf sitt af frjálsum vilja í hendur Guðs, með hjálp heilags anda, til að deyja fyrir syndir okkar. Hann var fullkominn og syndlaus – algjörlega lýtalaus. (aiōnios g166)
Hebrews 9:15 (Hebreabréfið 9:15)
(parallel missing)
Kristur færði okkur þennan nýja sáttmála til þess að allir þeir, sem boðnir eru, geti komið og notið um eilífð þeirrar blessunar sem Guð hefur heitið þeim. Kristur dó til að forða okkur undan refsingunni, sem við höfðum kallað yfir okkur, vegna syndanna sem við drýgðum meðan gamli sáttmálinn var í gildi. (aiōnios g166)
Hebrews 9:26 (Hebreabréfið 9:26)
(parallel missing)
Þá hefði hann orðið að deyja margsinnis, allt frá því heimurinn varð til. Nei, það hefði verið óhugsandi! Hann kom í eitt skipti fyrir öll, á hinum síðustu tímum, til að brjóta vald syndarinnar á bak aftur að eilífu. Það gerði hann með því að deyja fyrir okkur. (aiōn g165)
Hebrews 11:3 (Hebreabréfið 11:3)
(parallel missing)
Með því að trúa – treysta orðum Guðs – þá skiljum við hvernig alheimurinn hefur orðið til úr engu, eftir skipun Guðs. (aiōn g165)
Hebrews 13:8 (Hebreabréfið 13:8)
(parallel missing)
Jesús Kristur er hinn sami í gær og í dag og að eilífu. (aiōn g165)
Hebrews 13:20 (Hebreabréfið 13:20)
(parallel missing)
Guð friðarins, sem vakti Drottin Jesú upp frá dauðum, annist allar þarfir ykkar, svo að þið getið gert vilja hans. Ég bið hann, hinn mikla hirði sauðanna, sem undirritaði eilífan sáttmála milli ykkar og Guðs með blóði sínu, (aiōnios g166)
Hebrews 13:21 (Hebreabréfið 13:21)
(parallel missing)
að hann fullkomni ykkur í öllu góðu fyrir kraft Krists, svo að þið gerið hans vilja og séuð honum þóknanleg. Honum sé dýrðin að eilífu. Amen. (aiōn g165)
James 3:6 (Jakobsbréf 3:6)
(parallel missing)
Tungan er logandi eldur. Hún er full illsku og eitrar allan líkamann. Tungan er tendruð af sjálfu helvíti og hún getur leitt ógn og eyðingu yfir líf okkar. (Geenna g1067)
1-Peter 1:23 (1 Pétursbréf 1:23)
(parallel missing)
Nú lifið þið nýju lífi! Þetta nýja líf var ekki gjöf frá foreldrum ykkar, því að það líf sem þau gáfu ykkur, mun fjara út. Nýja lífið mun vara að eilífu, því að það er frá Kristi, honum sem er orð lífsins, boðskapur Guðs til mannanna. (aiōn g165)
1-Peter 1:25 (1 Pétursbréf 1:25)
(parallel missing)
en orð Drottins mun vara að eilífu. Boðskapur Guðs er fagnaðarerindið, sem þið hafið fengið að heyra. (aiōn g165)
1-Peter 4:11 (1 Pétursbréf 4:11)
(parallel missing)
Hafir þú fengið köllun til að predika, predikaðu þá eins og það væri sjálfur Guð sem talaði í gegnum þig. Hafir þú köllun til að hjálpa öðrum, skaltu gera það af heilum hug og af þeim krafti sem Guð gefur þér, svo að hann hljóti heiðurinn vegna Jesú Krists. Hans er mátturinn og dýrðin að eilífu. Amen. (aiōn g165)
1-Peter 5:10 (1 Pétursbréf 5:10)
(parallel missing)
En eftir að þið hafið þjáðst skamma hríð, mun Guð, sem birtir kærleika sinn í Kristi, veita ykkur af sinni eilífu dýrð. Hann mun koma sjálfur til að sækja ykkur og leiða ykkur inn í dýrð sína og gera ykkur sterkari en nokkru sinni fyrr. (aiōnios g166)
1-Peter 5:11 (1 Pétursbréf 5:11)
(parallel missing)
Hans er mátturinn um alla framtíð, öld eftir öld. Amen. (aiōn g165)
2-Peter 1:11 (2 Pétursbréf 1:11)
(parallel missing)
Þá mun Guð opna hlið himnanna fyrir ykkur upp á gátt, svo að þið getið gengið inn í hið eilífa ríki Drottins okkar og frelsara Jesú Krists. (aiōnios g166)
2-Peter 2:4 (2 Pétursbréf 2:4)
(parallel missing)
Ekki hlífði Guð englunum sem syndguðu, heldur varpaði hann þeim niður til heljar, þar sem þeir bíða dómsdags, læstir inni í dimmum og drungalegum hellum. (Tartaroō g5020)
2-Peter 3:18 (2 Pétursbréf 3:18)
(parallel missing)
Vaxið heldur andlega og lærið að þekkja betur Drottin okkar og frelsara, Jesú Krist. Honum sé heiður og dýrð, bæði nú og um alla framtíð. Amen. Pétur (aiōn g165)
1-John 1:2 (1 Jóhannesarbréf 1:2)
(parallel missing)
Hann er lífið frá Guði og hann hefur birst okkur. Það er sannleikur að við höfum séð hann. Ég er að tala um Krist, hann sem er eilífa lífið. Í upphafi var hann hjá föðurnum, en síðan fengum við að sjá hann. (aiōnios g166)
1-John 2:17 (1 Jóhannesarbréf 2:17)
(parallel missing)
Þessi heimur mun líða undir lok og með honum allt það illa sem í honum er, en sá sem gerir Guðs vilja, mun lifa að eilífu. (aiōn g165)
1-John 2:25 (1 Jóhannesarbréf 2:25)
(parallel missing)
Guð hefur heitið okkur gjöf og sú gjöf er eilíft líf. (aiōnios g166)
1-John 3:15 (1 Jóhannesarbréf 3:15)
(parallel missing)
Sá sem hatar meðbróður sinn er í raun og veru morðingi og sá sem hyggur á morð, getur ekki átt eilíft líf. (aiōnios g166)
1-John 5:11 (1 Jóhannesarbréf 5:11)
(parallel missing)
Hvað hefur Guð sagt? Að hann hafi gefið okkur eilíft líf og að þetta líf sé í syni hans. (aiōnios g166)
1-John 5:13 (1 Jóhannesarbréf 5:13)
(parallel missing)
Þetta hef ég skrifað ykkur, sem trúið á son Guðs, til þess að þið vitið að þið eigið eilíft líf. (aiōnios g166)
1-John 5:20 (1 Jóhannesarbréf 5:20)
(parallel missing)
Við vitum að Kristur, sonur Guðs, kom til að hjálpa okkur til þess að skilja og finna hinn eina sanna Guð. Nú tilheyrum við honum vegna þess að við erum í Jesú Kristi, syni hans. Hann er hinn eini sanni Guð – hann er eilífa lífið. (aiōnios g166)
2-John 1:2 (2 Jóhannesarbréf 1:2)
(parallel missing)
Við höldum fast við sannleikann (aiōn g165)
Jude 1:6 (Júdasarbréf 1:6)
(parallel missing)
Ég minni ykkur einnig á englana sem áður voru heilagir og hreinir, en steyptu sér síðan sjálfviljugir út í syndina. Nú geymir Guð þá í myrkrinu og þar bíða þeir dómsdags. (aïdios g126)
Jude 1:7 (Júdasarbréf 1:7)
(parallel missing)
Gleymið ekki heldur borgunum Sódómu og Gómorru og nágrannabæjum þeirra. Þar ríkti siðleysi og mikil kynvilla. Þessar borgir eyðilögðust í eldi og þær munu vera okkur stöðug viðvörun um refsinguna sem bíður syndaranna. (aiōnios g166)
Jude 1:13 (Júdasarbréf 1:13)
(parallel missing)
Allt, sem þeir skilja eftir, er skömm og svívirðing – eins og óhrein froða, sem öldur bera á land. Þeir reika um líkt og stjörnur á myrkum brautum himinsins. (aiōn g165)
Jude 1:21 (Júdasarbréf 1:21)
(parallel missing)
Forðist allt sem hindrar líf ykkar í kærleika Guðs og bíðið með þolinmæði eilífa lífsins, sem Drottinn Jesús Kristur ætlar að gefa ykkur af miskunn sinni. (aiōnios g166)
Jude 1:25 (Júdasarbréf 1:25)
(parallel missing)
Honum tilheyrir dýrð, hátign, máttur og vald frá upphafi, í dag og um ókomna tíma. Hann er þess megnugur að varðveita ykkur frá hrösun og leiða ykkur fagnandi, lýtalaus og heilög inn í dýrð sína. Amen. Júdas. (aiōn g165)
Revelation 1:6 (Opinberun Jóhannesar 1:6)
(parallel missing)
Hann hefur safnað okkur saman inn í ríki sitt og gert okkur að prestum Guðs, föður síns. Lofið hann og gefið honum dýrðina – alla dýrðina! Hann mun ríkja að eilífu! Amen. (aiōn g165)
Revelation 1:18 (Opinberun Jóhannesar 1:18)
(parallel missing)
Ég var lifandi, síðan dó ég, en nú lifi ég að eilífu. Óttastu ekki, ég hef lykla dauðans og heljar! (aiōn g165, Hadēs g86)
Revelation 4:9 (Opinberun Jóhannesar 4:9)
(parallel missing)
Verurnar gjalda honum, sem í hásætinu situr, dýrð, heiður og þökk, honum, sem lifir um aldir alda, (aiōn g165)
Revelation 4:10 (Opinberun Jóhannesar 4:10)
(parallel missing)
og þá falla öldungarnir tuttugu og fjórir fram fyrir auglit hans og tilbiðja hann. Þeir varpa kórónum sínum fram fyrir hásætið og syngja: (aiōn g165)
Revelation 5:13 (Opinberun Jóhannesar 5:13)
(parallel missing)
Þá heyrði ég alla, sem eru á himni og jörðu og einnig hina dauðu sem eru í jörðinni og hafinu, hrópa og segja: „Blessunin, heiðurinn, dýrðin og mátturinn tilheyra honum, sem í hásætinu situr, og lambinu um alla eilífð.“ (aiōn g165)
Revelation 6:8 (Opinberun Jóhannesar 6:8)
(parallel missing)
Þá sá ég fölbleikan hest og sá sem hann sat hét Dauði. Á hæla hans kom annar hestur og hét knapi hans Hel. Þeim var gefið vald yfir fjórðungi jarðarinnar, svo að þeir gætu eytt lífi með styrjöldum, hungursneyðum, drepsóttum og villidýrum. (Hadēs g86)
Revelation 7:12 (Opinberun Jóhannesar 7:12)
(parallel missing)
„Amen!“sögðu þeir. „Lofgjörðin, dýrðin, viskan, þakkargjörðin, heiðurinn, krafturinn og mátturinn sé Guði okkar um alla eilífð. Amen!“ (aiōn g165)
Revelation 9:1 (Opinberun Jóhannesar 9:1)
(parallel missing)
Nú blés fimmti engillinn. Þá sá ég einhvern, sem hafði fallið frá himnum og niður til jarðarinnar, og var honum fenginn lykillinn að hinum botnlausu undirdjúpum. (Abyssos g12)
Revelation 9:2 (Opinberun Jóhannesar 9:2)
(parallel missing)
Þegar hann opnaði þau gaus upp reykur, eins og úr stórum ofni, svo að sólin og loftið myrkvuðust. (Abyssos g12)
Revelation 9:11 (Opinberun Jóhannesar 9:11)
(parallel missing)
Foringi þeirra er konungur undirdjúpanna. Nafn hans er Abaddón á hebresku. Á grísku heitir hann Apollýón – eyðandinn. (Abyssos g12)
Revelation 10:6 (Opinberun Jóhannesar 10:6)
(parallel missing)
og sór við þann sem lifir um alla eilífð, hann sem skapaði himin og allt sem þar er, jörðina og allt sem á henni er, hafið og allt sem í því er, og sagði: „Nú er fresturinn á enda! (aiōn g165)
Revelation 11:7 (Opinberun Jóhannesar 11:7)
(parallel missing)
Þegar þeir hafa borið vitni í þrjú og hálft ár, mun harðstjórinn, sem stígur upp úr undirdjúpunum, lýsa yfir stríði gegn þeim, sigra þá og drepa. (Abyssos g12)
Revelation 11:15 (Opinberun Jóhannesar 11:15)
(parallel missing)
Rétt í því blés engillinn í lúðurinn. Þá heyrðist hrópað hárri röddu frá himnum: „Nú er allur heimurinn á valdi Drottins og í hendi Krists og hann mun ríkja um aldir alda.“ (aiōn g165)
Revelation 14:6 (Opinberun Jóhannesar 14:6)
(parallel missing)
Þá sá ég engil sem flaug um himininn. Hann var með eilífan gleðiboðskap til þeirra sem búa á jörðinni. Boðskapur þessi var ætlaður öllum þjóðum og þjóðarbrotum, öllum mönnum, hvaða tungumál sem þeir töluðu. (aiōnios g166)
Revelation 14:11 (Opinberun Jóhannesar 14:11)
(parallel missing)
Reykurinn af kvölum þeirra mun stíga upp um alla eilífð. Þeir fá enga hvíld, hvorki dag né nótt, vegna þess að þeir tilbáðu dýrið og líkneski þess og eru merktir einkennisstöfum þess. (aiōn g165)
Revelation 15:7 (Opinberun Jóhannesar 15:7)
(parallel missing)
Verurnar fjórar réttu þeim hverjum um sig eina gullskál. Skálarnar voru fullar af reiði Guðs, hans sem lifir um aldir alda. (aiōn g165)
Revelation 17:8 (Opinberun Jóhannesar 17:8)
(parallel missing)
Það var lifandi, en er það ekki lengur, og bráðlega mun það koma upp úr undirdjúpunum og fara til eilífrar glötunar. Þeir íbúar heimsins, sem ekki hafa fengið nöfnin sín skráð í bók lífsins frá því heimurinn varð til, munu undrast að dýrið skuli lifna við eftir dauðann. (Abyssos g12)
Revelation 19:3 (Opinberun Jóhannesar 19:3)
(parallel missing)
Aftur og aftur var endurtekið: „Dýrð sé Guði! Reykurinn frá rústum hennar mun stíga upp um alla eilífð!“ (aiōn g165)
Revelation 19:20 (Opinberun Jóhannesar 19:20)
(parallel missing)
Og dýrið var handtekið ásamt falsspámanninum, þeim sem gat gert mikil kraftaverk, ef dýrið var viðstatt – kraftaverk sem blekktu þá sem höfðu látið setja á sig merki dýrsins og tilbáðu líkneski þess. Þeim báðum – dýrinu og falsspámanninum – var fleygt lifandi í eldsdíkið, sem kraumar af logandi brennisteini. (Limnē Pyr g3041 g4442)
Revelation 20:1 (Opinberun Jóhannesar 20:1)
(parallel missing)
Eftir þetta sá ég engil koma frá himni og hélt hann á lykli sem gekk að undirdjúpunum. Auk þess hafði hann meðferðis þunga hlekki. (Abyssos g12)
Revelation 20:3 (Opinberun Jóhannesar 20:3)
(parallel missing)
og fleygði honum í botnlausa hyldýpið. Síðan lokaði hann því og læsti og þar varð Satan að dúsa í þúsund ár. Þetta gerði engillinn til þess að Satan gæti ekki leitt þjóðirnar afvega fyrr en að þessum þúsund árum liðnum, en þá átti að láta hann lausan í stuttan tíma. (Abyssos g12)
Revelation 20:10 (Opinberun Jóhannesar 20:10)
(parallel missing)
Þá mun djöflinum, honum sem leiddi þjóðirnar afvega, aftur verða fleygt í díkið, sem logar af eldi og brennisteini, þar sem bæði dýrið er og falsspámaðurinn og þessir munu kveljast dag og nótt um alla eilífð. (aiōn g165, Limnē Pyr g3041 g4442)
Revelation 20:13 (Opinberun Jóhannesar 20:13)
(parallel missing)
Höfin skiluðu aftur þeim sem þar voru geymdir og jörðin og undirheimarnir þeim sem þar voru. Hver og einn var dæmdur samkvæmt verkum sínum. (Hadēs g86)
Revelation 20:14 (Opinberun Jóhannesar 20:14)
(parallel missing)
Síðan var dauðanum og hel varpað í eldsdíkið. Þetta er hinn annar dauði: Eldsdíkið. (Hadēs g86, Limnē Pyr g3041 g4442)
Revelation 20:15 (Opinberun Jóhannesar 20:15)
(parallel missing)
Sérhverjum þeim, sem ekki fannst skráður í lífsins bók, var fleygt í eldsdíkið. (Limnē Pyr g3041 g4442)
Revelation 21:8 (Opinberun Jóhannesar 21:8)
(parallel missing)
Eldsdíkið sem logar af brennisteini, er staðurinn fyrir bleyður sem snúa við mér bakinu, þá sem eru mér ótrúir, hrakmenni, morðingja, saurlífismenn, þá sem hafa samskipti við illu andana, skurðgoðadýrkendur og alla þá sem iðka lygi – þar er hinn annar dauði.“ (Limnē Pyr g3041 g4442)
Revelation 22:5 (Opinberun Jóhannesar 22:5)
(parallel missing)
Þar verður aldrei nótt og því engin þörf fyrir lampa eða sól, því að Drottinn Guð mun lýsa þeim og þeir munu ríkja um alla eilífð. (aiōn g165)

CAL > Aionian Verses: 14
ICE > Aionian Verses: 214