< ԳՈՐԾՔ ԱՌԱՔԵԼՈՑ 17 >

1 Ամփիպոլիսէն եւ Ապողոնիայէն անցնելով՝ Թեսաղոնիկէ եկան, ուր Հրեաներուն ժողովարանը կար:
Eftir þetta lá leið þeirra um borgirnar Amfípólis og Appolóníu og síðan Þessaloníku, en þar var samkomuhús Gyðinga.
2 Պօղոս ալ՝ իր սովորութեան համաձայն՝ մտաւ անոնց մէջ, ու երեք Շաբաթ օրեր խօսեցաւ անոնց հետ Գիրքերուն մասին,
Eins og Páll var vanur fór hann í samkomuhúsið til að predika. Þrjá helgidaga í röð las hann og skýrði Biblíuna fyrir fólkinu.
3 բացատրելով եւ փաստարկելով անոնց թէ Քրիստոս պէ՛տք է չարչարուէր ու մեռելներէն յարութիւն առնէր. եւ ըսաւ. “Այս Յիսուսը՝ որ ես կը հռչակեմ ձեզի, Քրիստո՛սն է”:
Hann benti því á spádómana um þjáningar og upprisu Krists og sannaði að Jesús væri Kristur.
4 Անոնցմէ ոմանք անսացին ու միացան Պօղոսի եւ Շիղայի, նաեւ՝ բարեպաշտ Յոյներէն մեծ բազմութիւն մը. առաջնակարգ կիներէն հաւատացողներն ալ սակաւաթիւ չէին:
Sumir þeirra sem hlustuðu létu sannfærast og snerust til trúar, þar á meðal mikill fjöldi guðrækinna Grikkja og margar mikilsvirtar konur úr borginni.
5 Բայց չանսացող Հրեաները նախանձեցան, եւ քանի մը դատարկապորտ, գռեհիկ մարդիկ առնելով՝ բազմութիւն ժողվեցին, ամբողջ քաղաքին մէջ աղմուկ հանեցին, ու Յասոնի տան վրայ յարձակելով կը փնտռէին զանոնք՝ որ ամբոխին տանին:
En leiðtogar Gyðinganna urðu afbrýðisamir og æstu götuskrílinn gegn þeim. Múgurinn réðst að húsi Jasons og ætlaði að draga Pál og Sílas fyrir borgarráðið til að láta refsa þeim.
6 Երբ չգտան զանոնք, Յասոնը եւ քանի մը եղբայրներ քաշկռտելով տարին քաղաքապետներուն առջեւ՝ գոռալով. «Անոնք որ երկրագունդը տակնուվրայ ըրին՝ հոս ալ հասած են,
Þeir fundu þá ekki þar, en drógu í staðinn Jason og nokkra aðra trúaða menn fyrir borgarráðið og hrópuðu: „Páll og Sílas hafa vakið óeirðir um allan heim og nú eru þeir komnir hingað til að hleypa öllu upp!
7 ու Յասոն ընդունած է զանոնք: Ասոնք բոլորը կը գործեն կայսրին հրամաններուն դէմ, ըսելով թէ ուրիշ թագաւոր մը կայ՝ Յիսուս անունով»:
Jason hefur leyft þeim að gista hjá sér. Hann og allir þessir eru sekir um landráð, því að þeir segja að Jesús sé konungur og hafna keisaranum.“
8 Բազմութիւնն ու քաղաքապետները վրդովեցան՝ լսելով այս բաները:
Dómararnir litu málið mjög alvarlegum augum, eins og borgarbúar, en létu þá þó lausa gegn tryggingu.
9 Բայց երբ երաշխիք առին Յասոնէն եւ միւսներէն՝ արձակեցին զանոնք:
10 Եղբայրներն ալ իսկոյն՝ գիշերուան մէջ՝ Բերիա ղրկեցին Պօղոսն ու Շիղան, որոնք հոն հասնելով՝ գացին Հրեաներուն ժողովարանը:
Hinir kristnu flýttu sér að koma Páli og Sílasi undan um nóttina og fóru með þá til Beroju. Þegar þangað kom, gengu þeir eins og venjulega inn í samkomuhúsið til að predika.
11 Ասոնք աւելի ազնիւ էին՝ քան Թեսաղոնիկէի մէջ եղողները. Աստուծոյ խօսքը ընդունեցին լման յօժարութեամբ, եւ ամէն օր կը զննէին Գիրքերը, տեսնելու թէ այդպէ՛ս են այդ բաները:
Íbúar Beroju voru vingjarnlegri en fólkið í Þessaloníku og hlustuðu áhugasamir á boðskapinn. Þeir rannsökuðu Gamla testamentið daglega, til að fullvissa sig um að Páll og Sílas hefðu rétt fyrir sér.
12 Ուստի անոնցմէ շատերը հաւատացին, ու մեծայարգ յոյն կիներէն եւ այր մարդոցմէն հաւատացողներն ալ սակաւաթիւ չէին:
Árangurinn varð sá að margt fólk tók trú, þar á meðal nokkrar tignar grískar konur, auk margra karlmanna.
13 Բայց երբ թեսաղոնիկեցի Հրեաները գիտցան թէ Բերիայի մէջ ալ Պօղոս հռչակեց Աստուծոյ խօսքը, հո՛ն ալ եկան ու գրգռեցին բազմութիւնը:
Þegar Gyðingarnir í Þessaloníku fréttu að Páll væri að predika í Beroju, komu þeir þangað og hleyptu öllu í uppnám.
14 Այն ատեն եղբայրները իսկոյն Պօղոսը ճամբեցին՝ որ երթայ մինչեւ ծովեզերքը, բայց Շիղա եւ Տիմոթէոս մնացին հոն:
Kristnir menn brugðu skjótt við og sendu Pál niður til strandar, en Sílas og Tímóteus urðu eftir.
15 Անոնք որ կը տանէին Պօղոսը՝ հասցուցին զայն մինչեւ Աթէնք, ապա մեկնեցան՝ պատուէր ստանալով Շիղայի ու Տիմոթէոսի համար, որ շուտով գան իրեն:
Fylgdarmenn Páls fóru með honum til Aþenu, en sneru svo aftur til Beroju með skilaboð til Sílasar og Tímóteusar um að koma strax og hitta hann.
16 Մինչ Աթէնքի մէջ Պօղոս կը սպասէր անոնց, իր հոգին գրգռուած էր իր մէջ, տեսնելով քաղաքը՝ լեցուած կուռքերով:
Meðan Páll beið þeirra í Aþenu, varð hann fyrir miklum vonbrigðum – borgin var full af skurðgoðum!
17 Ուստի ժողովարանին մէջ կը խօսէր Հրեաներուն ու բարեպաշտ մարդոց, նաեւ ամէն օր հրապարակներուն մէջ՝ անոնց որ հանդիպէր:
Hann fór í samkomuhúsið til Gyðinganna og ræddi við þá og aðra trúrækna menn. Auk þess talaði hann daglega á torginu til allra, sem þar fóru um.
18 Քանի մը Եպիկուրեան եւ Ստոյիկեան փիլիսոփաներ ալ կը խորհրդակցէին իրեն հետ: Ոմանք կ՚ըսէին. «Ի՞նչ ըսել կ՚ուզէ այս սերմնաքաղը»: Ուրիշներ ալ կ՛ըսէին. «Կը թուի թէ օտար աստուածներու քարոզիչ է». որովհետեւ կ՚աւետէր անոնց Յիսուսը եւ յարութիւնը:
Þá tóku nokkrir Epíkúringar og Stóuspekingar að þrátta við hann. Þegar hann sagði þeim frá Jesú og upprisu hans, sögðu sumir: „Hvaða rugl er nú þetta!“og aðrir: „Þú ert að boða einhverja ókunna guði.“
19 Ուստի առնելով զայն՝ տարին Արիսպագոս ու կ՚ըսէին. «Կրնա՞նք գիտնալ թէ ի՛նչ է այդ նոր ուսուցումը՝ որ դուն կը քարոզես,
Þeir buðu honum með sér upp á Aresarhæð, þar sem menn voru vanir að skiptast á skoðunum, og sögðu: „Segðu okkur eitthvað meira um þessa nýju trú.
20 որովհետեւ քանի մը տարօրինակ բաներ լսել կու տաս մեզի՝՝: Ուրեմն կ՚ուզենք գիտնալ թէ ի՛նչ կրնան ըլլալ ատոնք»:
Hún virðist vera mjög óvenjuleg og okkur langar að heyra meira.“
21 (Որովհետեւ բոլոր Աթենացիներուն եւ հոն գաղթած օտարականներուն ժամանցը ուրիշ ոչինչ է, քան նոր բան ըսել կամ լսել: )
Aþenubúar, og þeir sem flutt höfðu til borgarinnar, virtust eyða öllum sínum tíma í viðræður um nýjustu viðhorf og kenningar.
22 Հետեւաբար Պօղոս կայնեցաւ Արիսպագոսի մէջ եւ ըսաւ. «Աթենացի՛ մարդիկ, կը նշմարեմ թէ ամէն ինչով չափազանց կրօնասէր էք:
Páll stóð nú frammi fyrir þessum mönnum á Aresarhæð og sagði: „Aþenumenn, ég hef tekið eftir því að þið eruð mjög trúhneigðir.
23 Քանի որ ես շրջելով ու ձեր պաշտամունքը զննելով՝ գտայ զոհասեղան մը, որուն վրայ գրուած էր. «Անծանօթ Աստուծոյն»: Ուստի ա՛ն՝ որմէ դուք կ՚ակնածիք առանց ճանչնալու, ես զա՛յն կը հռչակեմ ձեզի:
Á göngu minni um borgina sá ég fjölmörg ölturu og á eitt þeirra var ritað: Til óþekkta guðsins. – Þið hafið sem sagt tilbeðið Guð án þess að þekkja hann, en nú skal ég segja ykkur frá honum.
24 Աստուած՝ որ ստեղծեց աշխարհը եւ անոր մէջ եղած բոլոր բաները, ի՛նք՝ որ Տէրն է երկինքի ու երկրի, ո՛չ կը բնակի ձեռակերտ տաճարներու մէջ,
Hann skapaði heiminn og allt sem í honum er. En af því að hann er Drottinn himins og jarðar, býr hann ekki í musterum, sem menn hafa reist.
25 ո՛չ ալ կը խնամուի մարդոց ձեռքով՝ իբր թէ որեւէ բանի կարօտ ըլլար. քանի որ ի՛նք կու տայ բոլորին կեանք, շունչ, եւ ամէն ինչ:
Því síður annast mannlegar hendur þarfir hans, því að hann þarfnast einskis! Hann er sá sem gefur öllu líf og anda og uppfyllir allar þarfir.
26 Մէ՛կ արիւնէ ստեղծեց մարդոց բոլոր ազգերը՝ որպէսզի բնակին ամբողջ երկրի մակերեսին վրայ, ու սահմանեց նախապէս որոշուած ժամանակները եւ անոնց բնակարանի սահմանները՝ որ փնտռեն Տէրը,
Hann skapaði hinn fyrsta mann, og frá honum mennina, sem byggja allt yfirborð jarðarinnar. Hann ákvað fyrir fram hvenær þjóðirnar skyldu komast til valda og hvenær þær skyldu líða undir lok, og hann ákvað einnig landamæri þeirra.
27 ու թերեւս գտնեն զինք խարխափելով, թէպէտ մեզմէ իւրաքանչիւրէն ալ հեռու չէ:
Ætlun hans var að mennirnir leituðu Guðs, svo að þeir gætu nálgast hann og fundið. Hann er þó ekki fjarri neinum okkar,
28 Արդարեւ անո՛վ կ՚ապրինք, կը շարժինք եւ կանք, ինչպէս ձեր բանաստեղծներէն ոմանք ալ ըսին. “Քանի որ մենք անոր ցեղէն իսկ ենք”:
því í honum lifum, hrærumst og erum við, eins og eitt af skáldum ykkar hefur sagt: „Við erum synir Guðs.“
29 Ուրեմն՝ Աստուծոյ ցեղէն ըլլալով՝ պէտք չէ կարծենք՝՝ թէ աստուածութիւնը նման է ոսկիի կամ արծաթի կամ քարի, քանդակուած մարդկային արուեստով ու երեւակայութեամբ՝՝:
Fyrst svo er, ættum við ekki að hugsa okkur Guð sem líkneski gert af mönnum úr gulli, silfri eða höggvið í stein.
30 Եւ հիմա Աստուած, անտեսելով այս անգիտութեան ժամանակները, ամէնուրեք կը պատուիրէ բոլոր մարդոց՝ որ ապաշխարեն:
Öldum saman hefur Guð umborið slíka fáfræði hjá fólki, en nú hvetur hann alla til að hafna skurðgoðunum og tilbiðja sig einan.
31 Որովհետեւ սահմանած է օր մը, երբ պիտի դատէ երկրագունդը արդարութեամբ՝ իր որոշած մարդուն միջոցով. եւ այս մասին հաւաստիք տուաւ բոլորին՝ մեռելներէն յարուցանելով զայն»:
Hann hefur ákveðið að dag einn muni hann dæma heiminn og til þess verks hefur hann valið mann og staðfest val hans með því að vekja hann upp frá dauðum.“
32 Երբ լսեցին մեռելներու յարութեան մասին՝ ոմանք ծաղրեցին, իսկ ուրիշներ ըսին. «Այս մասին դարձեալ մտիկ պիտի ընենք քեզի»:
Þegar fólkið heyrði Pál tala um upprisu frá dauðum, hlógu sumir, en aðrir sögðu: „Við skulum hlusta á þetta seinna.“
33 Այսպէս Պօղոս մեկնեցաւ անոնց մէջէն:
Þannig lauk viðræðum þeirra,
34 Սակայն քանի մը մարդիկ յարեցան իրեն, ու հաւատացին. անոնց մէջ էին Դիոնեսիոս Արիսպագացին, Դամարիս անունով կին մը, եւ իրենց հետ ուրիշներ:
en nokkrir héldu sig þó að Páli og tóku trú. Þeirra á meðal var Díónýsíus, fulltrúi í borgarráðinu, kona, Damaris að nafni, og nokkrir aðrir.

< ԳՈՐԾՔ ԱՌԱՔԵԼՈՑ 17 >