< Romakëve 2 >

1 Prandaj, o njeri, cilido të jesh ti që e gjykon, je i pafalshëm sepse në këtë që gjykon tjetrin, dënon vetveten, sepse ti që gjykon bën të njëjtat gjëra.
„Ja, hérna, “segir þú ef til vill, „hvers konar úrþvætti ertu eiginlega að tala um?“En sjáðu til! Þú ert ekkert betri! Þegar þið lýsið vanþóknun ykkar á þessu fólki og segið að það eigi skilið hegningu, þá eruð þið að tala um ykkur sjálf, því að þið gerið sjálf það sama.
2 Por ne e dimë se gjykimi i Perëndisë është sipas së vërtetës mbi ata që bëjnë gjëra të tilla.
Við vitum að Guð mun dæma sérhvern þann sem slíkt gerir, því að hann er réttlátur.
3 Dhe mendon, vallë, o njeri që gjykon ata që bëjnë të tilla gjëra që edhe ti i bën, t’i shpëtosh gjykimit të Perëndisë?
Haldið þið að Guð dæmi suma sem þannig lifa og refsi þeim, en geri síðan enga athugasemd við ykkur þegar þið gerið það sama?
4 Apo i përçmon pasuritë e mirësisë së tij, të durimit dhe zemërgjerësisë së tij, duke mos njohur që mirësia e Perëndisë të prin në pendim?
Sjáið þið ekki hve mikla þolinmæði hann hefur sýnt ykkur? Eða er ykkur ef til vill alveg sama? Skiljið þið ekki að ástæða þess að hann hefur ekki refsað ykkur, er sú að hann gefur ykkur tækifæri til að snúa baki við syndinni? Góðsemi hans ætti að leiða ykkur til iðrunar.
5 Por ti, për shkak të ashpërsisë sate dhe të zemrës së papenduar, po mbledh për veten tënde zemërim për ditën e zemërimit dhe të zbulesës së gjykimit të drejtë të Perëndisë,
Þrátt fyrir það viljið þið ekki hlusta og þar með kallið þið yfir ykkur hræðilega hegningu, því þið eruð þrjósk og viljið ekki snúa ykkur frá syndinni. Dagur reiðinnar mun renna upp og þá mun Guð dæma allan heiminn af réttvísi.
6 që do ta shpaguajë secilin sipas veprave të tij:
Hann mun gjalda sérhverjum eins og hann á skilið samkvæmt verkum sínum:
7 jetë të përjetshme atyre që kërkojnë lavdi, nder e pavdekësi, duke ngulmuar në veprat e mira; (aiōnios g166)
Þeim sem af þrautseigju gera Guðs vilja, mun hann gefa eilíft líf, það er að segja þeim sem leita ósýnilegrar dýrðar, heiðurs og ódauðleika. (aiōnios g166)
8 ndërsa atyre që kundërshtojnë e nuk i binden së vërtetës, por i binden padrejtësisë, indinjatë dhe zemërim.
Þeim hins vegar, sem berjast gegn sannleika Guðs og ganga á vegi illskunnar, mun hann refsa hræðilega – hann mun úthella reiði sinni yfir þá.
9 Mundim dhe ankth mbi çdo shpirt njeriu që bën të ligën, Judeut më parë e pastaj Grekut;
Menn munu uppskera sorg og þjáningar haldi þeir áfram í syndinni,
10 por lavdi, nder e paqe cilitdo që bën të mirën, Judeut më parë e pastaj Grekut.
en hlýði þeir Guði, mun þeim hlotnast dýrð, heiður og friður Guðs. Þetta á bæði við um Gyðinga og heiðingja,
11 Sepse te Perëndia nuk ka anësi.
því Guð fer ekki í manngreinarálit.
12 Në fakt të gjithë ata që kanë mëkatuar pa ligjin, do të humbasin gjithashtu pa ligj; dhe të gjithë ata që kanë mëkatuar nën ligjin do të gjykohen sipas ligjit,
Guð mun refsa fyrir synd, hvar sem hún finnst. Hann mun refsa heiðingjunum þegar þeir syndga, jafnvel þótt þeir hafi aldrei þekkt hin skráðu lög Guðs, því að innra með sér þekkja þeir muninn á réttu og röngu.
13 sepse jo ata që dëgjojnë ligjin janë të drejtë para Perëndisë, por ata që e zbatojnë ligjin do të shfajësohen.
Lög Guðs eru skráð í vitund þeirra. Stundum dæmir samviskan þá og stundum afsakar hún þá.
14 Në fakt kur johebrenjtë, që s’kanë ligjin, nga natyra bëjnë punët e ligjit, ata, megjithëse s’kanë ligjin, janë ligj për vetveten;
En Guð mun einnig refsa Gyðingum. Hann mun refsa þeim fyrir syndir þeirra, því að þeir eiga lög hans skráð í bók en hlýða þeim þó ekki. Þeir vita hvað er rangt, en breyta gegn betri vitund.
15 këta tregojnë veprën e ligjit të shkruar në zemrat e tyre për dëshminë që jep ndërgjegja e tyre, dhe sepse mendimet e tyre shfajësojnë ose edhe akuzojnë njëri-tjetrin,
Þegar öllu er á botninn hvolft er hjálpræðið ekki þeirra sem þekkja mun á réttu og röngu, heldur hinna sem gera það sem rétt er.
16 ditën në të cilën Perëndia do të gjykojë të fshehtat e njerëzve me anë të Jezu Krishtit, sipas ungjillit tim.
Sá dagur mun vissulega koma, er Jesús Kristur mun að boði Guðs dæma líferni sérhvers manns og líka dýpstu hugsanir hans og viðhorf. Allt er þetta hluti hinnar miklu fyrirætlunar Guðs, sem ég boða.
17 Ja, ti quhesh Jude, bazohesh mbi ligjin dhe lëvdohesh në Perëndinë,
Gyðingar, þið haldið að allt sé á hreinu milli ykkar og Guðs vegna þess að þið eruð Gyðingar og vegna þess að hann gaf ykkur lög sín. Þið gortið af því að vera í sérstöku uppáhaldi hjá Guði!
18 njeh vullnetin e tij dhe dallon gjërat e rëndësishme, duke qenë i mësuar prej ligjit,
Ekki neita ég því að þið þekkið vilja hans; þið þekkið mun á réttu og röngu og hafið vit á að velja hið rétta, því að ykkur hafa verið kennd lög Guðs frá blautu barnsbeini.
19 dhe je i bindur se je prijësi i të verbërve, drita e atyre që janë në errësirë,
Þið eruð svo vissir um leiðina til Guðs að þið gætuð jafnvel bent blindum manni á hana. Þið álítið ykkur vera leiðarljós sem leiðbeina þeim til Guðs, sem villst hafa í myrkrinu.
20 udhëzues i të marrëve, mësues i të miturve, sepse ke formën e njohurisë dhe të së vërtetës në ligj.
Þið teljið ykkur geta leiðbeint hinum lítilmótlegu og frætt börnin um verk Guðs, því að þið þekkið lög hans, vísdóm og sannleika.
21 Ti, pra, që mëson të tjerët, nuk mëson veten? Ti që predikon se nuk duhet vjedhur, vjedh?
Þið fræðið aðra um lög hans, en hvers vegna farið þið ekki sjálfir eftir þeim? Þið segið fólki að rangt sé að stela – en stelið þið ekki sjálfir?
22 Ti që thua se nuk duhet shkelur kurora, shkel kurorën? Ti që ke neveri për idhujt, pse i plaçkit tempujt?
Þið segið að rangt sé að drýgja hór, en hvað með ykkur? Þið segið: „Tilbiðjið ekki skurðgoðin, “en svo gerið þið peningana að guði ykkar.
23 Ti që lëvdohesh me ligjin, e çnderon Perëndinë duke e shkelur ligjin?
Þið eruð ákaflega stoltir af því að þekkja lög Guðs en síðan lítilsvirðið þið Guð með því að brjóta þau.
24 Në fakt, siç është shkruar: “Për shkakun tuaj, emri i Perëndisë blasfemohet ndër johebrenj”.
Ekki undrar mig þótt Gamla testamentið segi að heimurinn tali illa um Guð ykkar vegna.
25 Sepse rrethprerja është e dobishme në qoftë se ti respekton ligjin, por në qoftë se je shkelës i ligjit, rrethprerja jote bëhet mosrrethprerje.
Það er kostur fyrir ykkur að vera Gyðingar ef þið hlýðið lögum Guðs, en ef ekki, þá eruð þið engu betur settir en heiðingjarnir.
26 Prandaj në qoftë se një i parrethprerë respekton statutet e ligjit, a nuk do të çmohet parrethprerja e tij si rrethprerje?
Mun Guð ekki veita heiðingjunum alla þá blessun sem hann ætlaði Gyðingunum, ef þeir hlýða lögum hans?
27 Dhe, në qoftë se ai që prej natyrës është i parrethprerë e plotëson ligjin, a nuk do të të gjykojë ai ty që me shkronjën dhe me rrethprerjen je shkelës i ligjit?
Staðreyndin er sú að betur mun fara fyrir heiðingjunum en ykkur, Gyðingum, sem þekkið Guð og eigið loforð hans, því að þið hlýðið þeim ekki.
28 Në fakt Jude nuk është ai që duket i tillë nga jashtë, dhe rrethprerja nuk është ajo që duket në mish;
Þið eruð ekki sannir Gyðingar fyrir það eitt að foreldrar ykkar voru Gyðingar eða vegna þess að þið hlutuð hina gyðinglegu vígslu, umskurnina.
29 por Jude është ai që është i tillë përbrenda, dhe rrethprerja është ajo e zemrës, në frymë dhe jo në shkronjë; dhe për një Jude të tillë lavdërimi nuk buron nga njerëzit, por nga Perëndia.
Nei, sá einn er sannur Gyðingur sem hefur rétta afstöðu til Guðs. Guð sækist ekki eftir þeim sem skera í líkama sinn samkvæmt gyðinglegri venju, heldur þeim sem hafa breytt hugarfari sínu og endurnýjað samband sitt við Guð. Hver sem þannig tekur upp nýja lífsstefnu, hlýtur blessun Guðs, jafnvel þótt hann láti sér fátt um finnast.

< Romakëve 2 >