< Opinberun Jóhannesar 22 +

1 Síðan benti hann mér á fljót lífsvatnsins. Það rann silfurtært frá hásæti Guðs og lambsins 2 og niður aðalgötuna. Sitt hvoru megin við fljótið óx lífsins tré og ber það ávöxt tólf sinnum á ári, eina uppskeru í mánuði hverjum, og blöðin eru notuð til lækninga fyrir þjóðirnar. 3 Í borginni finnst ekkert illt, því að þar er hásæti Guðs og lambsins og þjónar hans munu tilbiðja hann. 4 Þeir munu sjá auglit hans og nafn hans mun vera skrifað á enni þeirra. 5 Þar verður aldrei nótt og því engin þörf fyrir lampa eða sól, því að Drottinn Guð mun lýsa þeim og þeir munu ríkja um alla eilífð. (aiōn g165) 6 Þá sagði engillinn við mig: „Það sem ég segi nú er áreiðanlegt og satt: „Ég kem skjótt!“Guð, sem segir spámönnum sínum hvað framtíðin ber í skauti, hefur sent engil sinn til að segja ykkur að þetta muni verða innan skamms. Blessaður er sá, sem trúir því, og öllu öðru, sem skráð er í þessa bók.“ 7 8 Ég, Jóhannes, sá þetta allt og heyrði og ég féll að fótum engilsins til þess að tilbiðja hann, því að hann hafði opinberað mér þetta. 9 En hann sagði aftur: „Nei, gerðu þetta ekki. Ég er líka þjónn Jesú eins og þú og bræður þínir, spámennirnir, og allir þeir sem varðveita sannleikann, sem skráður er í þessa bók. Þú skalt tilbiðja Guð, hann einan.“ 10 Síðan gaf hann mér þessi fyrirmæli: „Innsiglaðu ekki það, sem þú hefur skrifað, því að það mun rætast innan skamms. 11 Þegar sá tími kemur, munu illgjörðamenn verða önnum kafnir í illsku sinni. Vondir menn munu versna, en góðir batna og hinir heilögu munu helgast enn meira. 12 Sjá, ég kem skjótt og launin hef ég með mér til að gjalda hverjum og einum eftir verkum hans. Ég er upphafið og endirinn, hinn fyrsti og hinn síðasti. 13 Blessaðir eru þeir að eilífu sem þvo skikkjur sínar. 14 Þeir komast um hliðin inn í borgina og borða ávextina, sem vaxa á lífsins tré. 15 Úti fyrir borginni eru þeir sem snúið hafa baki við Guði, töframenn, saurlífismenn, morðingjar, skurðgoðadýrkendur og allir þeir sem elska og iðka lygi. 16 Ég, Jesús, hef sent engil minn til ykkar, til þess að segja kirkjunni – söfnuði trúaðra – frá öllu þessu. Ég er hvort tveggja: Forfaðir Davíðs og afkomandi hans. Ég er stjarnan skínandi, morgunstjarnan.“ 17 Andi Guðs og brúðurin segja: „Kom þú!“Komi sá, sem þyrstur er! Hver sem vill, komi og drekki lífsvatnið endurgjaldslaust. 18 Ég segi í fyllstu alvöru við hvern þann sem les þessa bók: Ef einhver bætir einhverju við það, sem hér er skráð, þá mun Guð bæta við líf hans þeim plágum sem þar er lýst. 19 Ef einhver tekur burt einhvern af þessum spádómum, þá mun Guð taka frá honum hlut hans í lífsins tré og borginni helgu sem áður var lýst. 20 Sá, sem þetta hefur sagt, segir: „Já, ég kem skjótt!“Amen! Kom þú Drottinn Jesús! 21 Náð Drottins Jesú Krists sé með öllum þeim sem hann hefur helgað. Amen.

< Opinberun Jóhannesar 22 +