< Sálmarnir 95 >

1 Komið! Við skulum lofsyngja Drottni! Hrópum gleðióp til heiðurs kletti hjálpræðisins! 2 Komum fram fyrir hann með þakkargjörð, syngjum honum lofgjörðarsálm. 3 Því að Drottinn er mikill Guð og æðri öllum sem menn kalla guði. 4 Hann hefur upphugsað djúp jarðar og hannað hin hæstu fjöll. 5 Hann gerði hafið og myndaði þurrlendið, allt er hans! 6 Komið! Föllum fram fyrir Drottni, skapara okkar, 7 því að hann er okkar Guð. Við erum hjörðin hans og hann er hirðir okkar. Ó, að þið vilduð heyra kall hans í dag og koma til hans. 8 Forherðið ekki hjörtu ykkar eins og Ísraelsmenn gerðu hjá Meriba og Massa í eyðimörkinni. 9 Þar drógu feður ykkar orð mín í efa – sömu menn og sáu mig gera mörg kraftaverk. Þeir freistuðu mín, kvörtuðu og reyndu á þolinmæði mína. 10 „Í fjörutíu ár hafði ég viðbjóð á þessari kynslóð, “segir Drottinn Guð. „Hjörtu þeirra allra voru langt í burtu frá mér og ekki vildu þeir halda lög mín. 11 Þá hét ég því að þeir skyldu aldrei komast inn í fyrirheitna landið, staðinn sem ég hafði ætlað þeim til hvíldar.“

< Sálmarnir 95 >