< Sálmarnir 61 >

1 Ó, Guð, heyrðu hróp mitt! Hlustaðu á bæn mína.
[For the Chief Musician. For a stringed instrument. By David.] Hear my cry, God. Listen to my prayer.
2 Því að hvar sem ég fer, jafnvel um endimörk jarðar, þá hrópa ég eftir hjálp þinni. Þegar hjarta mitt örmagnast og ég get ekki meir, þá lyftu mér á klett, hjálpræðisbjargið þitt góða, mitt örugga skjól.
From the most remote place of the earth, I will call to you, when my heart is overwhelmed. Lead me to the rock that is higher than I.
3 Þú ert skjól mitt, háreist borg, ókleif óvinum.
For you have been a refuge for me, a strong tower from the enemy.
4 Í helgidómi þínum mun ég búa að eilífu, öruggur í skjóli vængja þinna,
I will dwell in your tent forever. I will take refuge in the shelter of your wings. (Selah)
5 Því að þú, ó Guð, hefur heyrt heit mín og uppfyllt óskir þeirra sem óttast þig og heiðra nafn þitt.
For you, God, have heard my vows. You have given me the heritage of those who fear your name.
6 Þú munt lengja lífdaga mína og láta ævi konungsins vara frá kyni til kyns.
You will prolong the king's life; his years shall be for generations.
7 Ég mun lifa frammi fyrir Drottni að eilífu! Lát elsku þína og trúfesti gæta mín,
He shall be enthroned in God's presence forever. Appoint your loving kindness and truth, that they may preserve him.
8 þá mun ég lofa nafn þitt um aldur og ævi og efna heit mín dag eftir dag.
So I will sing praise to your name forever, that I may fulfill my vows day after day.

< Sálmarnir 61 >