< Sálmarnir 6 >

1 Æ, Drottinn! Ekki refsa mér í reiði þinni! 2 Miskunnaðu mér því að ég örmagnast. Lækna mig, því að líkami minn er sjúkur. 3 Ég er hræddur, veit ekki mitt rjúkandi ráð. Ó, Drottinn, reistu mig á fætur, og það fljótt! 4 Komdu Drottinn og læknaðu mig. Bjargaðu mér í kærleika þínum. 5 Því að ef ég dey, þá get ég ekki lengur lofað þig meðal vina minna. (Sheol h7585) 6 Ég er aðframkominn af kvöl. Hverja nótt væti ég koddann með tárum. 7 Augu mín daprast af hryggð vegna illráða óvina minna. 8 Farið! Látið mig í friði, þið illmenni, því að Drottinn hefur séð tár mín 9 og heyrt grátbeiðni mína. Hann mun svara öllum mínum bænum. 10 Óvinir mínir munu verða til skammar og skelfingin mun steypast yfir þá. Guð mun reka þá sneypta burtu.

< Sálmarnir 6 >