< Sálmarnir 47 >

1 Komið allar þjóðir! Klappið saman höndum af gleði! Hrópið af fögnuði fyrir Guði! 2 Drottinn er æðri öllum guðum. Hann er ógurlegur. Honum verður ekki með orðum lýst. Hann er konungur til endimarka jarðarinnar. 3 Hann hefur beygt þjóðir undir sig 4 og valið úr yndislegt land og gefið okkur, þjóð sinni, Ísrael. 5 Guð er stiginn upp með miklu hrópi og hvellum lúðurhljómi. 6 Lofsyngið Guði, konungi okkar. Já, syngið lofgjörðarsöng fyrir konunginn, 7 konung allrar jarðarinnar. Lofsyngið Guði! 8 Hann ríkir yfir þjóðunum. Hann situr á hásæti sínu. 9 Leiðtogar heimsins koma og taka undir lofgjörðina með lýð Guðs Abrahams. Skjaldarmerki þjóðanna eru sigurtákn hans. Hann er mjög upphafinn. Hann er konungur alls heimsins.

< Sálmarnir 47 >