< Sálmarnir 28 >

1 Ég hrópa til þín um hjálp, Drottinn, því að þú ert klettur hjálpræðis míns. Ef þú hjálpaðir ekki væri úti um mig. Framundan væri ekkert nema dauðinn. 2 Drottinn, ég lyfti höndum til himins og ákalla þig um hjálp. Ó, heyr þú grátbeiðni mína! 3 Drottinn, refsaðu mér ekki ásamt illgjörðamönnunum, þeim sem sitja á svikráðum við nágranna sína. 4 Refsaðu þeim eins og rétt er. Illvirki þeirra eiga skilið réttlátan dóm. 5 Þeir hugsa ekkert um Guð, sköpun hans og verk. Þess vegna mun Guð ryðja þeim úr vegi, rífa þá eins og ónýtt hús sem ekki verður endurreist. 6 Lofaður sé Drottinn! Hann heyrði grátbeiðni mína! 7 Hann er styrkur minn, skjól mitt gegn öllum árásum. Honum treysti ég og hann hjálpaði mér. Gleðin svellur í brjósti mér og brýst út í lofgjörð til hans! 8 Drottinn verndar sitt fólk og veitir konungi sínum sigur. 9 Stattu vörð um þjóð þína, Drottinn! Vernda og blessa þitt útvalda fólk. Eins og fjárhirðir leiðir sauði sína, þá leið og vernda þjóð þína að eilífu.

< Sálmarnir 28 >