< Sálmarnir 24 >

1 Jörðin er eign Drottins og allt sem á henni er, – heimurinn og þeir sem í honum búa. 2 Það var hann sem safnaði vötnunum saman svo að hafið varð til og þurrlendið birtist. 3 Hver fær að stíga upp á fjall Drottins og ganga inn í bústað hans? Hver fær staðist frammi fyrir honum? 4 Aðeins þeir sem hafa hreint hjarta og óflekkaðar hendur, heiðarlegt fólk sem segir sannleikann. 5 Þeir munu njóta gæsku Guðs, og hann, frelsari þeirra, mun lýsa þá réttláta. 6 Það eru þeir sem fá að standa frammi fyrir Drottni og tilbiðja hann, Guð Jakobs. 7 Opnist þið fornu dyr! Konungur dýrðarinnar vill ganga inn. 8 Hver er konungur dýrðarinnar? Það er Drottinn, hinn voldugi og sterki, sigurhetjan. 9 Já, opnist þið ævafornu dyr fyrir konungi dýrðarinnar! 10 Hver er þessi konungur dýrðarinnar? Drottinn, sá er ræður öllum hersveitum himnanna, hann er konungur dýrðarinnar!

< Sálmarnir 24 >