< Sálmarnir 15 >

1 Drottinn, hver fær að leita skjóls og hælis í tjaldi þínu á fjallinu þínu helga? 2 Sá sem er hógvær og lifir réttlátu lífi. 3 Sá sem ekki baktalar náungann, leggur sig ekki eftir slúðri né gerir meðbróður sínum mein. 4 Sá sem andmælir illverkum og fyrirlítur þau. Sá sem heiðrar þá er fylgja Drottni í trúfesti og stendur við orð sín hvað sem það kostar.

< Sálmarnir 15 >