< Sálmarnir 130 >

1 Ó, Drottinn, ég er í nauðum staddur, heyrðu hróp mitt! 2 Hlustaðu á mig! Svaraðu og hjálpaðu mér! 3 Drottinn, ef þú rifjaðir sífellt upp syndir okkar, hver fengi þá staðist? 4 En þú fyrirgefur! Getum við annað en óttast þig og elskað? 5 Og þess vegna bið ég og vona og treysti hjálp Guðs, því að hann hefur lofað að hjálpa. 6 Næturverðirnir þrá nýjan dag, en ég þrái Drottin enn meira! 7 Ísrael, treystu Drottni því að hann er góður og miskunnsamur og veitir gnægð lausnar. 8 Hann mun sjálfur leysa Ísrael frá öllum misgjörðum hans.

< Sálmarnir 130 >