< Sálmarnir 122 >

1 Ég varð glaður þegar sagt var við mig: „Komdu! Förum í musterið, hús Drottins!“ 2 Við erum stödd í Jerúsalem 3 og borgin er full af fólki. 4 Allur Ísrael – þjóð Drottins – er kominn til að tilbiðja og lofa Drottin samkvæmt reglu lögmálsins. 5 Sjáið! Þarna eru dómararnir í borgarhliðinu, þeir skera úr deilumálum fólksins. 6 Biðjið þess að friður haldist í Jerúsalem og að þeir sem hana elska njóti heilla og hamingju. 7 Ég bið að friður ríki umhverfis þig og hagsæld sé í höllum þínum, 8 já, vegna bræðra minna og vina sem hér búa. 9 Ég bið um hamingju þér til handa, Jerúsalem, vegna musteris Drottins sem í þér er.

< Sálmarnir 122 >