< Sálmarnir 120 >

1 Ég ákalla Guð í neyð minni og hann hjálpar mér. 2 Drottinn, frelsaðu mig frá svikum og prettum. 3 Þú lygatunga, hver verða örlög þín? 4 Oddhvassar örvar munu stinga þig og glóandi kol brenna þig! 5 Hvílík mæða að búa með óguðlegum! 6 Ég er þreyttur á þeim sem hata friðinn. 7 Ég þrái frið, en þeir elska stríð og láta ráð mín sem vind um eyrun þjóta.

< Sálmarnir 120 >