< Sálmarnir 12 >

1 Drottinn! Hjálpa þú! Hinum trúuðu fækkar óðum. Hvar eru þeir sem hægt er að treysta? 2 Allir ljúga og iðka svik og pretti, en einlægnin virðist fokin út í veður og vind. 3 En Drottinn mun ekki fara mjúkum höndum um þá sem iðka ranglæti. 4 Hann mun útrýma þessum lygurum sem segja: „Við skulum ljúga til um áform okkar, enda ráðum við sjálfir hvað við segjum!“ 5 Þessu svarar Drottinn: „Ég mun rísa upp og verja þá kúguðu, fátæku og hrjáðu. Ég mun frelsa þá samkvæmt bænum þeirra.“ 6 Loforð Drottins eru áreiðanleg. Hvert orð á vörum hans er satt og rétt eins og marghreinsað skíragull. 7 Drottinn, við vitum að þú munt varðveita þitt fólk frá verkum illra manna, 8 þó svo þeir vaði alls staðar uppi og njóti heiðurs í landinu.

< Sálmarnir 12 >